Dómarar í ensku úrvalsdeildinni eru sagðir bæði hneykslaðir og öskureiðir

Hörður Snævar Jónsson

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 17:30

Leny Yoro og Isak Getty Images

Dómarar í ensku úrvalsdeildinni eru sagðir bæði hneykslaðir og öskureiðir vegna ákvörðunar enska knattspyrnusambandsins um að fella úr gildi rauða spjaldið sem Leny Yoro fékk gegn Liverpool á sunnudag.

Frá þessu greinir Daily Mail í dag.

Yoro var rekinn af velli á áttundu mínútu í 4-0 tapi Manchester United á Anfield fyrir brot á Alexander Isak. Um var að ræða fyrsta leik United undir stjórn Mauricio Pochettino.

United áfrýjaði ákvörðuninni með þeim rökum að Senne Lammens, markvörður liðsins, hefði orðið fyrri til boltans en Isak.

Áfrýjunin bar árangur og var eins leiks bann Frakkans fellt úr gildi á þriðjudag.

Samkvæmt heimildum Daily Mail komst óháð fimm manna nefnd ensku úrvalsdeildarinnar hins vegar einróma að þeirri niðurstöðu að rétt hefði verið að reka Yoro af velli.

Howard Webb, yfirmaður dómaramála á Englandi, hefur einnig komið Sam Barrott dómara til varnar.

„Ég held að flestir myndu líta á þetta sem rétta ákvörðun. Það má deila um hvort Lammens hefði orðið fyrri til boltans en ákvörðunin var alls ekki augljóslega röng,“ sagði Webb.

Forráðamenn United eru afar ósáttir við túlkun Webb og telja sig geta sýnt fram á það með gögnum að Isak hefði ekki náð til boltans á undan Lammens.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab