Verulegt áhyggjuefni hvernig staðið hefur verið að ráðningum hjá lögreglunni - „Má aldrei verða viðtekin venja“
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir verulegt áhyggjuefni hvernig staðið hafi verið að ráðningum í stjórnunarstöður hjá íslensku lögreglunni undanfarin misseri. Þar hafi vaknað upp spurningar þegar gengið er fram hjá reynslumiklu fólki og grunsemdir vaknað um að vinatengsl og annað slíkt geti haft áhrif á hverjir hljóta framgang í starfi. Þetta kemur fram í færslu Guðmundar á Facebook:
„Ítrekað vakna spurningar um hvers vegna gengið er fram hjá einstaklingum sem búa yfir áratuga starfsreynslu, víðtækri þekkingu og umfangsmikilli stjórnunarreynslu.
Allt of oft virðist reynsla og raunveruleg fagleg hæfni víkja fyrir öðrum sjónarmiðum. Þegar jafnframt vakna grunsemdir um að vinatengsl, persónuleg tengsl og þátttaka í einkafélagsskap geti haft áhrif á hverjir veljast til ábyrgðarstarfa er full ástæða til að staldra við. Slíkt má aldrei verða viðtekin venja innan íslenskrar stjórnsýslu.“
Guðmundur segist hafa rætt málið við fjölmarga og finnur hann fyrir vaxandi óánægju, áhyggjum og vonbrigðum meðal lögreglufólks. Það sé enda alvarlegt þegar reynslumikið og hæft starfsfólk upplifir að reynsla þess, þekking og fagmennska skipti sífellt minna máli þegar kemur að frama í starfi. Tryggja þurfi að umsækjendur um stjórnunarstörf séu metnir með málefnalegum og faglegum hætti.
Afstaða hafi um nokkurra ára skeið haft vaxandi áhyggjur af því sem félagið telur vera töluverða hnignun í gæðum og fagmennsku í tilteknum störfum lögreglunnar.
„Sú gagnrýni beinist ekki síst að stjórnun, vinnubrögðum og faglegri ábyrgð innan hennar. Innan lögreglunnar starfar mikið af einstaklega hæfu og góðu fólki sem á skilið faglega og trausta stjórnendur.
Þessar áhyggjur verða enn alvarlegri þegar til umræðu er að veita lögreglunni frekari rannsóknarheimildir og aukið vald gagnvart almenningi. Auknum valdheimildum verða að fylgja auknar kröfur um fagmennsku, hæfni, ábyrgð og sjálfstætt eftirlit.“
Guðmundur telur tíma til kominn á ítarlega og óháða úttekt á ráðningum og stöðuhækkunum innan lögreglunnar og taka til skoðunar persónuleg tengsl umsækjenda, mögulega hagsmunaárekstra og hvort málefnalegra sjónarmiða hafi verið gætt.
„Stjórnunarstöður innan lögreglunnar eiga ekki að vera umbun fyrir kunningsskap, vináttu eða félagsleg tengsl. Þær eiga að vera skipaðar einstaklingum sem eru best til þess fallnir að bera þá miklu ábyrgð sem störfunum fylgir.
Almenningur á rétt á faglegri lögreglu og lögreglufólk á rétt á faglegum stjórnendum.
Áður en við aukum vald lögreglunnar verðum við að tryggja að hún búi yfir hæfni, fagmennsku og heilindum til að fara með það vald sem henni hefur þegar verið falið.“
Guðmundur er ekki fyrstur til að benda á stöðuna. Lögreglumaðurinn Nanna Lind Stefánsdóttir skrifaði árið 2023 meistararitgerð um hvernig slælegri stjórnunarhættir og spilling hefði verið stór áhrifavaldur í miklu brottfalli meðal lögreglumanna. Þar vakti hún ahtygli á ófaglegum ráðningum og takmörkuðum tækifærum til þróunar í starfi. Viðmælendu rhennar lýstu því að frændhygli væri algeng í ráðningum og að menn væru settir tímabundið í stöðu til eins árs og fengu svo ótímabundna ráðningu eftir að auglýsing um starfið var klæðskerasniðin að þeirri reynslu og eiginleikum sem viðkomandi öðlaðist á þeim tíma.
Nýlega féll úrskurður hjá kærunefnd jafnréttismála þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefði brotið gegn lögum með því að mismuna reyndum lögreglumanni á grundvelli aldurs.
Sjá einnig: Reyndur lögreglumaður varð fyrir mismunun vegna aldurs - Viðurkennt að mat á reynslu hans hafi verið rangt
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗