Lögmaður segir skjólstæðing sinn hafa verið kærðan fyrir að senda lögreglumanni vinabeiðni á Facebook

Gunnar Gíslason lögmaður segir að lögreglan á Norðurlandi eystra hafi stofnað mál gegn skjólstæðingi hans fyrir að senda lögreglumanni vinabeiðnir á Facebook. Voru málin skráð sem brot gegn valdstjórninni, nánar tiltekið gegn 106. gr. almennra hegningarlaga, en hún er svohljóðandi: 

„Hver, sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða út af því, og eins hver sá, sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfa eða neyða starfsmanninn til þess að framkvæma einhverja athöfn í embætti sínu eða sýslan, skal sæta … 1) fangelsi allt að 6 árum. [Ef brot samkvæmt þessari málsgrein beinist að opinberum starfsmanni, sem að lögum hefur heimild til líkamlegrar valdbeitingar, má beita fangelsi allt að 8 árum.]“ 

Kveikur fjallaði nýlega um vaxandi ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum og greindi frá mjög alvarlegum atvikum sem ekki þykja hafa fengið eðlilegan framgang hvað varðar rannsóknir og málsóknir. En í viðtali RÚV við Karl Inga Vilbergsson varahéraðssaksóknara kemur jafnframt fram að hlutfall valdstjórnarbrota sem hafa verið kærð og rannsökuð hjá embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er óvenjulega hátt, eða um 20%, sem er langt umfram hlutfall íbúafjölda í umdæminu. Sjá nánar hér en fjallað er um þetta í myndskeiði frá og með 14:30. 

Sendi vinabeiðni og ók fram hjá lögreglustöðinni

Gunnar Gíslason lögmaður tjá sig um málið í löngum pistli á Facebook-síðu sinni. Þar segir hann skjólstæðing sinn hafa verið sakaðan um valdstjórnarbrot fyrir að senda lögreglumönnum vinabeiðni og aka framhjá lögreglustöðinni á Akureyri. Samtals hafi um 20 mál er varða valdstjórnarbrot verið skráð á manninn en héraðssaksóknari hafi fellt þau öll niður: 

„Þann 27. mars 2026 er skjólstæðingi mínum gefið að sök að hafa sent lögreglumanni vinabeiðni á Facebook. Þann 3. apríl 2026 á hann að hafa sent öðrum lögreglumanni vinabeiðni. Sú vinabeiðni fékk líka sitt eigið málsnúmer í LÖKE. Þriðja málið varðar meintar vinabeiðnir á Facebook og Snapchat. Öll þrjú voru skráð sem meint brot gegn valdstjórninni, þ.e. brot gegn 106. gr. almennra hegningarlaga.

Í maí bættist enn eitt málið við. Þá hafði pilturinn ekið tvisvar fram hjá lögreglustöðinni á Akureyri meðan lögreglumenn voru að bóna bíl. Hann kvaðst hafa verið að líta eftir eigin bíl, sem lögreglan hafði haldlagt og stóð á bílastæðinu. Hann sagðist líka hafa spurt lögreglumennina hvort þeir gætu bónað sinn í leiðinni. Í málalýsingunni segir að svo hafi virst sem hann væri að leita eftir athygli. Hvar í þeirri lýsingu er hótunin?

Á undanförnu ári eða svo hafa um tuttugu mál verið skráð á þennan eina unga pilt, táning, vegna meintra brota gegn 106. gr. almennra hegningarlaga. Þau hafa öll verið felld niður af héraðssaksóknara. Þetta er sami piltur og ég ræddi um í september eftir að lögreglan beitti hann rafbyssu við handtöku á Akureyri og sagði lögregluna á Norðurlandi eystra leggja í einelti.“ 

Lögmaðurinn sat sjálfur í gæsluvarðhaldi

Gunnar segir að lögreglumaður sem verði fyrir árás í starfi eða raunverulegri hótun eigi að geta treyst því að málið sé rannsakað af alvöru. En mikilvægt sé að túlka 106. greinina rétt en hún gerir ráð fyrir ofbeldi eða hótun um ofbeldi. 

Gunnar hefur sjálfur verið kærður fyrir valdstjórnarbrot. Rétt er í því samhengi að rifja upp samskipti hans við embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, en síðla árs 2025 sat hann í gæsluvarðhaldi í tvær vikur vegna rannsóknar lögreglu á kannabisræktun á Raufarhöfn. Skjólstæðingur Gunnars var á meðal sakborninga og var hann grunaður um hlutdeild í málinu. Hann hefur ekki verið ákærður í málinu. Hann greinir hins vegar frá því að fjögur meint valdstjórnarbrot séu skráð á hann í kerfum lögreglu: 

„Ég þekki þessi vinnubrögð lögreglunnar á Norðurlandi eystra líka á eigin skinni. Hjá embætti héraðssaksóknara eru nú fjögur opin mál á hendur mér, lögmanninum, vegna meintra brota gegn valdstjórninni. Eitt þeirra lýtur að því að ég hafi sagt við lögreglumann í nóvember 2025 að Eyþór Þorbergsson, saksóknari og staðgengill lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, væri „lygari, óþokki og drulludeli“ og að ég myndi „finna hann í fjöru“. Umrædd ummæli, sem í fræðunum kallast fúkyrði annars vegar og orðatiltæki hins vegar, stend ég við. Ekkert í þeim er hægt að heimfæra undir valdstjórnarbrot eða hótanir eins og mér er gefið að sök.

Annað mál varðar símtal. Í desember 2025 hafði ég margreynt að ná í Eyþór Þorbergsson í gegnum tölvupóst og vinnusímann hans. Að lokum hringdi ég í farsímann hans. Ég náði að kynna mig með nafni og starfsheiti. Þá skellti hann á. Hvað á ég að hafa sagt í því símtali sem gaf lögreglunni á Norðurlandi eystra tilefni til að skrá mál um brot gegn valdstjórninni?“

Lögmaðurinn og skjólstæðingur hans með fjórðung málanna?

Gunnar telur að hann sjálfur og áðurnefndur skjólstæðingur hans séu sakborningar í um fjórðungi þeirra mála þar sem lögreglan á Norðurlandi eystra hefur kært fyrir valdstjórnarbrot: 

„Mv. að 414 mál er varða brot gegn valdstjórninni hafi verið stofnuð í LÖKE á árunum 2022-2025, er hægt að gefa sér að þetta séu að meðaltali um 100 mál á ári. Að sama skapi er þá hægt að gefa sér að ég og umræddur skjólstæðingur minn séum þá samanlagt sakborningar í um 20-25% af öllum slíkum meintum brotum undanfarna 12 mánuði, á öllu Íslandi, sem sömuleiðis eru öll kærð af lögreglunni á Norðurlandi eystra. Geri aðrir betur!“             

Pistil Gunnars í heild má lesa með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan: 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab