Hífði sextán upp:„Ég er þreyttur, rosalega þreyttur“
„Ég er þreyttur, rosalega þreyttur,“ segir Elvar Már Sigurðsson, sigmaður hjá TF-Gró, sem lýsti mögnuðu björgunarafreki og aðstæðum í gærkvöldi þegar 17 skipverjar af Jökli SH voru hífðir um borð í þyrluna.
Sjálfur sótti hann sextán af sautján skipverjum. Hann segir enga æfingu geta undirbúið mann undir aðstæður líkar þeim sem voru í gærkvöldi.
„Þeir voru fastir í línum og spottum og því fór mikil vinna í það að losa þá,“ segir Elvar.
Hann segir að stressið hafi hjálpað til og það hafi ekki verið óyfirstíganlegt, heldur hafi það verið jákvætt stess sem gaf honum orku.
„Það var ekkert annað í huga mér annað en að klára verkefnið.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗