Hentar okkur betur að vera litla liðið

Sigurður Pétursson.

Sigurður Pétursson. mbl.is/Karítas

Sigurður Pétursson, leikmaður Álftanes í úrvalsdeild karla í körfubolta, er í landsliðshóp Íslands sem mætir Bosníu í Laugardalshöll í kvöld og Tyrklandi á útivelli á sunnudag í undankeppni HM 2027.

„Menn eru kátir. Ég finn það allavega og þeir leikmenn sem eru kannski að spila erlendis eru glaðir að vera komnir aftur heim til Íslands. Í þau skipti sem ég hef verið hérna finnst mér alltaf vera stemning í hópnum. Það er mikil gleði og allir vinir,“ sagði Sigurður í samtali við mbl.is.

Hann segir það frábært tækifæri að fá að æfa með bestu leikmönnum landsins og að hann læri mikið af því.

„Þetta er bara geðveikt. Þetta er rjóminn og við viljum spila með rjómanum. Maður getur lært helling af þeim og þarf alltaf að vera á tánum. Þetta eru bestu leikmennirnir og það er bara geðveikt að fá að vera með,“ sagði hann.

Aðspurður um möguleika Íslands gegn Bosníu í kvöld minnist Sigurður á að íslenska liðið sé vant því að vera í hlutverki þess sem minna er spáð.

„Við erum alltaf einhvern veginn í hlutverki litla liðsins en ég held að það sé bara betra fyrir okkur. Vonandi vanmeta þeir litla Ísland og við getum komið þeim á óvart og tekið á þeim,“ sagði hann.

Tyrkirnir reyndust Íslandi erfiðir í síðasta landsleikjaglugga en Sigurður telur að íslenska liðið geti gert þeim skráveifu á útivelli.

„Þeir eru góðir í körfubolta, við skulum alveg viðurkenna það en eins og ég sagði, vonandi vanmeta Tyrkirnir okkur líka og við getum vonandi strítt þeim, sett smá pressu á þá og unnið leikinn,“ sagði Sigurður.

Vonast til að fá stærra hlutverk

Sigurður hefur ekki verið í stóru hlutverki með landsliðinu í síðustu verkefnum en vonast til að fá fleiri tækifæri núna. Hann segir þriggja stiga skotin sín hafa verið að detta betur að undanförnu.

„Í síðustu gluggum hefur hlutverkið mitt bara verið að vera til taks, vera góður strákur og ekki í einhverju stóru hlutverki. Vonandi breytist það núna. Í síðustu gluggum hef ég ekki verið með nógu góð þriggja stiga skot og því kannski lítið hægt að nota mig þannig.

Núna hafa skotin verið að detta betur og vonandi verður hægt að nota mig aðeins meira. Hvort sem ég spila eða ekki er ég alltaf þakklátur og glaður að vera hérna,“ sagði Sigurður.

Bræðurnir sameinaðir

Bróðir Sigurðar Hilmar Pétursson, leikmaður Keflavíkur, er einnig í landsliðshópnum.

„Ég er mjög glaður fyrir hans hönd að vera kominn inn í þennan hóp. Ég hef sagt við alla vini mína að hann sé að berjast við mjög góða leikmenn um sæti í hópnum.

Martin, Elvar og Ægir eru augljóslega allir mjög góðir í körfubolta. Það er styrkleikamerki fyrir hann að vera kominn inn í þennan hóp og ég er bara glaður fyrir hans hönd,“ sagði hann.

Sigurður Pétursson er í landsliðshópi Íslands.

Sigurður Pétursson er í landsliðshópi Íslands. mbl.is/Karítas

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab