Fordæmir níð eftir Haaland-viðtalið
Marius Skjelbæk, fréttamaður TV 2, hefur orðið fyrir víðtæku netníði eftir að hann spurði Erling Haaland, framherja Manchester City, út í meint brot félagsins á fjármálareglum eftir landsleik á dögunum.
Í hlaðvarpinu TV 2 Snakk Sport! sagði Skjelbæk að skilaboðum hefði rignt yfir hann á samfélagsmiðlum og í smáskilaboðum.
„Þetta er allt frá sanngjörnum athugasemdum til þess sem jaðrar við hótanir,“ sagði hann.
„Ég hef ekki fengið neinar líflátshótanir, miðað við það sem ég hef lesið, en ég sé að ansi margir vilja að lífi mínu ljúki.“
Vegard Jansen Hagen, íþróttaritstjóri TV 2, fordæmdi áreitið í viðtali við Nettavisen. „Það er algjörlega óásættanlegt að blaðamenn sem sinna starfi sínu verði fyrir níði,“ sagði hann.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗