Andlát: Ingvar Jónsson
Knattspyrnumarkvörðurinn Ingvar Jónsson er látinn, 37 ára að aldri.
Ingvar greindist með illkynja krabbamein í maí á þessu ári og hóf strax lyfjameðferð við meininu en hann lést á líknadeild Landspítalans í Kópavogi í nótt.
Alls lék hann átta A-landsleiki fyrir Íslands og var í lokahóp landsliðsins á Evrópumótinu 2016 í Frakklandi.
Fæddur í Keflavík
Ingvar fæddist í Keflavík þann 18. október árið 1989 og ólst upp hjá Njarðvík þar sem hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki árið 2006. Hann lék 65 leiki fyrir Njarðvíkinga áður en hann gekk til liðs við Stjörnuna fyrir tímabilið 2011.
Í Garðabænum festi Ingvar sig í sessi sem einn besti markvörður efstu deildar en tímabilið 2014 varð hann Íslandsmeistari með Garðbæingum í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þá var Ingvar valinn besti leikmaður deildarinnar sama ár.
Atvinnumennska í Skandinavíu
Eftir frábært tímabil með Stjörnunni gekk hann til liðs við Start í norsku úrvalsdeildinni árið 2015 en var síðar lánaður til Sandnes Ulf. Þaðan lá leiðin til Sandafjord árið 2016 þar sem hann lék í tvö tímabil.
Árið 2018 gekk hann svo til liðs við Viborg í Danmörku þar sem hann lék í eitt tímabil og var liðið nálægt því að komast upp í dönsku úrvalsdeildina en tapaði í umspili B-deildarinnar.
Fjórfaldur Íslandsmeistari
Ingvar snéri heim úr atvinnumennsku í janúar árið 2020 og samdi við Víking úr Reykjavík þar sem að hann varð fjórum sinnum Íslandsmeistari; 2021, 2023, 2025 og 2026. Þá varð hann einnig þrívegis bikarmeistari með liðinu.
Hann lék sinn fyrsta A-landsleik þann 12. nóvember árið 2014 þegar hann kom inn á í hálfleik fyrir Ögmund Kristinsson í vináttulandsleik gegn Belgíu.
Eftirlifandi eiginkona Ingvars er Íris Guðmundsdóttir. Börn þeirra Kristín, Elvar og Viðar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


