Flugmenn skora á stjórnvöld í kjölfar slyssins
Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, skorar á stjórnvöld að koma hið fyrsta í veg fyrir að aftur skapist aðstæður eins og þær sem áhöfn björgunarþyrlu Landhelgisgæslu Íslands stóð frammi fyrir þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk í gær.
Í tilkynningu frá félaginu segir að löngu tímabært sé orðið að Landhelgisgæslan fái í það minnsta fjórðu þyrluna og það tryggt að ávallt verði tvær öflugar björgunarþyrlur til taks á hverjum tíma.
Þyrlu þurfi utan suðvesturhornsins
„Til að minnka viðbragðstíma til sjós og lands ætti hluti þyrluflota Landhelgisgæslunnar að vera staðsettur utan suðvesturhorns landsins. Hér er um öryggi allra landsmanna og sjófarenda að tefla,“ segir í tilkynningu félagsins.
„Það er ólíðandi að áhöfn björgunarþyrlu skuli sett í þá stöðu að þurfa að brjóta reglur um eigið öryggi til að bjarga skipsáhöfn í lífsháska.“
Nefndin skorar á ríkisstjórn Íslands að tryggja Landhelgisgæslunni fé til rekstrarins þannig að ávallt verði tvær björgunarþyrlur til taks á hverjum tíma.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗