Ráðinn til starfa í Garðabæ
Hallgrímur Heimisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu. Félagið greindi frá ráðningunni í tilkynningu á samfélagsmiðlum.
Samhliða því mun Hallgrímur koma að uppbyggingu og þróun kvennaliðs KFG.
„Við erum sannfærð um að reynsla hans, metnaður og þekking muni nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu og þróun leikmanna hjá Stjörnunni,“ sagði í tilkynningu félagsins.
Stjarnan endaði í sjötta sæti Bestu deildarinnar í ár eftir að hafa verið í fjórða sæti fyrir skiptingu en liðið gaf verulega eftir á lokakaflanum.
Óskar Smári Haraldsson er aðalþjálfari Stjörnunnar og verður næsta tímabil hans annað tímabilið með liðið.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/58/1695897.jpg)