Ráðinn til starfa í Garðabæ

Hallgrímur Heimisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Stjörnunnar.

Hallgrímur Heimisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Ljósmynd/Stjarnan

Hallgrímur Heimisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu. Félagið greindi frá ráðningunni í tilkynningu á samfélagsmiðlum.

Samhliða því mun Hallgrímur koma að uppbyggingu og þróun kvennaliðs KFG.

„Við erum sannfærð um að reynsla hans, metnaður og þekking muni nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu og þróun leikmanna hjá Stjörnunni,“ sagði í tilkynningu félagsins.

Stjarnan endaði í sjötta sæti Bestu deildarinnar í ár eftir að hafa verið í fjórða sæti fyrir skiptingu en liðið gaf verulega eftir á lokakaflanum.

Óskar Smári Haraldsson er aðalþjálfari Stjörnunnar og verður næsta tímabil hans annað tímabilið með liðið.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab