„Þetta er ekki óheppni, þetta er pólitísk ákvörðun“
Jóhannes Jóhannesson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að fjársvelta stofnunina. Hann átti að manna aðra þyrlu í tengslum við björgunaraðgerðirnar vegna sjóslyssins, þegar Jökull SH, sökk austur af landinu í gær en engin þyrla var tiltæk.
Hann hafi því hvorki getað stutt samstarfsfólk sitt á vettvangi né verið til taks ef eitthvað hefði farið úrskeiðis.
„Ég ber líka þunga reiði í garð ríkisstjórnar sem velur að fjársvelta Landhelgisgæsluna og setur okkur þannig í aðstæður þar sem öryggismörk eru teygð. Þetta er ekki óheppni, þetta er pólitísk ákvörðun,“ segir Jóhannes í færslu á Facebook.
Fór með sjúkraflugvél til Egilsstaða
Jóhannes fór þess í stað með sjúkraflugvél til Egilsstaða þar sem hann beið reiðubúinn að taka við ef björgunaraðgerðirnar drægjust á langinn. Til þess kom sem betur fer ekki og því flaug hann þyrlunni aftur til Reykjavíkur.
Jóhannes kveðst afar stoltur af samstarfsfólki sínu sem kom að björgun fjórtán manns úr sjávarháska í gær.
Áhafnir þyrlunnar TF-GRO og flugvélarinnar TF-SIF hafi ásamt starfsfólki í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sýnt ótrúlega fagmennsku og hugrekki.
„Á sama tíma er sorgin djúp yfir þeim þremur sem ekki komust heim, og ég votta aðstandendum þeirra alla mína samúð.“
Axli ábyrgð áður en næst reynir á
Jóhannes vonast til þess að stjórnvöld dragi lærdóm af atburðum gærdagsins.
„Þetta situr í mér, stoltið, sorgin og ábyrgðin. Ég vonast til þess að stjórnvöld læri af þessu og axli sína ábyrgð áður en næst reynir á.“
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗