Einkaviðtal DV við skipverja á Jökli -„Ég vissi að minn tími væri ekki kominn“
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 15:56
Pawel ætlar aftur á sjóinn þrátt fyrir þessa miklu eldraun. Hann missti tvo vini til áratuga á skipinu Jökli í gær.
Pawel Samilo er einn af áhafnarmeðlimum Jökuls ÞH 299 sem sökk austan við Gletting í gærkvöldi. Hann missti tvo góða vini sína til meira en tíu ára í slysinu voveiflega en segist alltaf hafa trúað því að hann myndi sjálfur lifa þetta af. Pawel hefur verið sjómaður í tuttugu ár á Húsavík og hann ætlar aftur á sjóinn.
„Ég er í nokkuð góðu ástandi. Ég er rifbeinsbrotinn en annars í ágætu ástandi,“ segir Pawel þegar DV náði við hann sambandi síðdegis í dag.
Hann hefur verið útskrifaður af heilbrigðisstofnun og er staddur í pólska sendiráðinu. Hann ætlar heim til Póllands í desember en ætlar að snúa aftur eftir áramót. Til þess að fara aftur á sjóinn.
Allir vissu hvað þeir áttu að gera
Aðspurður um slysið segist hann ekki vita hvers vegna Jökull sökk. Samkvæmt upplýsingum sem hafa komið fram í dag brotnaði lúga, 19 mínútum síðar var skipið sokkið. Pawel segir að þetta hafi gerst mjög hratt.
„Í fyrsta lagi var veðrið alveg hræðilegt. Það var svo vont,“ segir hann. „Ég athugaði ekki tímann en ég held að það hafi verið um klukkan fimm. Þetta gerðist mjög hratt. Það kom stór alda og lenti á skipinu. Við tókum á okkur svo mikið vatn. Það voru vandræði með dælurnar. Svo byrjuðum við að sökkva.“
Fumlaus viðbrögð hafi valdið því að ekki fór verr. Áhöfnin var vel undirbúin fyrir tilfelli eins og þetta.
„Skipstjórinn sagði okkur að fara í björgunargallana, fara upp í brú og svo reyna að lifa af. Hann stóð sig vel. Allir vissu hvað við þurftum að gera,“ segir Pawel.
Eins og greint hefur verið frá þurftu mennirnir að bíða klukkutímum saman í sjónum, í sex metra ölduhæð og kulda. Þeir vissu að björgun væri á leiðinni en það var langt í hana.
Ætlar aftur á sjóinn
Aðspurður um hvað fór í gegnum hugann á Pawel segist hann hafa verið merkilega rólegur og ekki mjög hræddur.
„Ég var bara svolítið hræddur. En ég vissi að ég var í góðu líkamlegu formi. Ég vissi að minn tími væri ekki kominn,“ segir hann.
Pawel er reyndur sjómaður. Hann hefur verið á sjó í 20 ár á Húsavík, það er frá árinu 2006.
Aðspurður um framtíðina eftir slíka raun segist Pawel hiklaust ætla að snúa aftur á sjóinn.
„Auðvitað. Ég kem aftur en þarf að finna mér aðra vinnu. Auðvitað fer ég aftur á sjóinn. Þetta er lífið mitt,“ segir hann.
Missti vini til áratuga
Sagan af Jökli ÞH 299 er ekki aðeins saga af björgun og hetjudáð. Hún er líka saga af missi og þann missi fékk Pawel að kynnast frá fyrstu hendi.
„Ég missti tvo góða vini. Annar pólskur maður lést, við höfðum unnið saman í tólf ár,“ segir hann. Annar íslenskur maður hafði unnið með honum lengi og var góður vinur. „Við þekktumst mjög vel. Við höfðum unnið saman í ábyggilega tólf eða fimmtán ár,“ segir Pawel.
Þann þriðja þekkti hann ekki jafn vel en kunni honum góða söguna. „Hann var búinn að vera í stuttan tíma í áhöfninni. Hann var mjög góður maður,“ segir Pawel.
Aðspurður um líðan annarra áhafnarmeðlimar segist Pawel trúa að þeir séu ekki mjög illa slasaðir.
„Ég held að það sé nokkurn veginn í lagi með flesta, líkamlega séð. Það er önnur saga með andlegu hliðina. En líkamlega held ég að þeir séu í lagi,“ segir hann. Veit hann þó ekki hversu margir eru komnir af heilbrigðisstofnunum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗