Útskýrir hvers vegna Jökull sökk - Hvarf í sæ 19 mínútum eftir neyðarkall

Skipið Jökull ÞH 299 fórst út af Austfjörðum í gærkvöld. Fjórtán skipverjum var bjargað á lífi en þrír létust. Samkvæmt frétt mbl.is var það brotin netalúga sem varð til þess að skipið sökk aðeins 19 mínútum eftir að skipstjórinn sendi neyðarkall klukkan 17:05. Þetta kom fram í skriflegu svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn miðilsins. 

Einn viðmælandi miðilsins sagði netlúguna hafa gefið sig þannig að svokallaðir glussar, sem eiga að loka lúgunni, hafi gefið sig. Eins hafi léttur veggur, sem átti að vera innanborðs og aðskilja rými, gefið sig og sjór þannig flætt óhindrað inn.

Pawel Samilo er einn af áhafnarmeðlimum Jökuls segir í samtali við DV að allt hafi gerst mjög hratt. Veður var vont og svo voru vandræði með dælurnar. 

Neyðarkall skipstjóra barst 17:05 og 17:24 kom merki í gegnum gervihnött til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð sem gaf til kynna að Jökull væri sokkinn.

Klukkan 17:17 greindi skipstjóri frá því að áhöfn væri komin í flotgalla og væri að yfirgefa skipið. Nánar má sjá tímalínu Landhelgisgæslunnar hjá mbl.is.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab