Fylgdi í fótspor þjóðhetjunnar í björgunarleiðangri gærkvöldsins
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 16:29
Benóný Ásgrímsson flugmaður og flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni á árunum 1978-2016 flaug þyrlum gæslunnar við björgun fjölda mannslífa. Flugmaður TF-GRO sem náði að bjarga lífum 14 af 17 áhafnarmeðlima fiskiskipsins Jökuls í gærkvöldi er stjúpdóttir Benónýs en hún flaug með honum síðasta flugið hans hjá gæslunni og myndin var tekin við það tækifæri. Mynd: Landhelgisgæslan.
Fátt hefur verið fjallað um meira í dag en skipsskaðann sem varð 60 sjómílum austur af Glettingi þegar fiskiskipið Jökull sökk með þeim afleiðingum að 3 áhafnarmeðlimir létust en 14 björguðust. Landhelgisgæslan hefur nú greint frá því hverjir voru í áhöfn björgunarþyrlunnar TF-GRO, sem hífði áhöfn Jökuls upp úr sjónum, en segja má að flugmaður þyrlunnar hafi þar fylgt í fótspor stjúpföður síns sem fyrir löngu er orðinn goðsögn í lifanda lífi, eftir að hafa flogið þyrlum Landhelgisgæslunnar, á löngum og glæstum starfsferli, í fjölda björgunaraðgerða, ekki síst út á rúmsjó, og komið þannig að björgun fjölda mannslífa.
Flugmaður TF-GRO í gærkvöldi var Brynhildur Ásta Bjartmarz en hún er önnur frá hægri á þessari mynd, sem Landhelgisgæslan hefur sent frá sér, af áhöfn þyrlunnar.
Sjá einnig: Hetjurnar okkar - Þetta eru áhafnirnar sem stóðu að björguninni
Brynhildur er stjúpdóttir Benónýs Ásgrímssonar sem starfaði hjá Landhelgisgæslunni frá árunum 1966-2016. Fyrstu árin var hann á skipum gæslunnar en færði sig síðan yfir í þyrluflugið árið 1978 og varð flugmaður og síðan flugstjóri. Benóný var raunar meðal þeirra sem komu þyrlubjörgunarsveit gæslunnar á fót og á sínum 38 ára langa ferli í fluginu flaug hann þyrlum gæslunnar við björgun fjölda mannslífa, ekki síst sjófarenda.
Benóný lét af stöfum hjá Landhelgisgæslunni vegna aldurs árið 2016 og í tilkynningu við það tækifæri kom fram að Brynhildur sem þá þegar var orðin þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni hefði flogið síðasta flugið með honum. Það er ekki ofsögum sagt að kalla Benóný þjóðhetju en Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði þegar Benóný var kvaddur:
„Benóný er löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi, þjóðarhetja og þjóðareign. Landhelgisgæslan þakkar þér Benóný fyrir óeigingjarnt starf, endalausa baráttu og viljastyrk við að halda okkur á floti og lifandi, móta starfsemina og tryggja öryggi í öll þessi ár; vera kletturinn, fyrirmyndin og brautryðjandinn“.
Það er líklega heldur ekki ofsögum sagt að Brynhildur sem flugmaður af annari kynslóð flugmanna hjá gæslunni hafi í gærkvöldi ásamt félögum sínum stigið stórt skref í átt að því að geta kallast þjóðhetjur.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗