Gagnrýnir leikmenn sína fyrir að kunna ekki ensku

Oliver Glasner, stjóri Nottingham Forest, hefur gagnrýnt nokkra leikmenn sína fyrir að hafa ekki lært ensku þrátt fyrir að hafa verið búsettir á Englandi í nokkur ár.

Forest hefur aðeins unnið tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni frá því að Glasner tók við liðinu í sumar og er liðið fyrir ofan fallsæti á markatölu.

Glasner sat fyrir svörum á fréttamannafundi fyrir leikinn gegn Chelsea á morgun þar sem hann kallaði eftir auknum kröfum innan félagsins.

„Við erum með leikmenn sem hafa verið hér í fjögur ár en tala ekki ensku. Ef þú ferð til Ítalíu eru allir leikmenn farnir að veita viðtöl á ítölsku eftir þrjá mánuði,“ sagði Glasner.

„Ef ég vil þjálfa á Englandi þarf ég að tala ensku. Ef ég vil þjálfa á Ítalíu þarf ég að tala ítölsku. Annars get ég bara verið heima í Austurríki þar sem allir skilja mig.“

Austurríkismaðurinn segir leikmenn sína þurfa að leggja meira á sig, bæði innan vallar og utan.

„Ég tel að enginn leikmanna okkar hafi náð hámarki getu sinnar. Það er alltaf hægt að bæta sig. Mikilvægast er að leikmennirnir vilji bæta sig.“

Glasner fundaði með eiganda félagsins, Evangelos Marinakis, fyrr í vikunni en Forest er talið ætla að fá um fimm nýja leikmenn í janúar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab