Lilja Rannveig baunar á þingmann Miðflokksins: „Snorri, þetta var klaufalegt hjá þér“

„Snorri, þetta var klaufalegt hjá þér,“ segir Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, sem baunar á Snorra Másson, þingmann Miðflokksins, í umræðum um gervigreind og framtíðarnefnd þingsins. 

Í störfum þingsins á þriðjudaginn kallaði Snorri eftir sérstakri umræðu um gervigreind á Alþingi. „En úr því að við erum í raun stödd núna í algerlega nýjum veruleika er kannski ekki nóg að ræða bara um það hvernig við fínpússum ýmis útfærsluatriði á þessu sviði. Líklega er tímabært að eiga dýpri umræðu um þær grundvallarbreytingar sem eru í þann mund að verða á mannlegu samfélagi og hvort við Íslendingar séum ekki þeirrar skoðunar að svona máttug tækni þurfi t.d. að sæta ströngu eftirliti eða takmörkunum,“ sagði hann.

„Við í Miðflokknum höfum óskað eftir sérstakri umræðu um gervigreind hér á Alþingi. Þá gefst okkur færi til að ræða þátttöku Íslands í alþjóðlegu ákalli um að öflugustu líkönin verði áfram undir stjórn manna og sæti óháðu mati. Við getum spurt okkur hvað íslensk stjórnvöld meina með slíkri afstöðu, hvernig henni er fylgt eftir og svo einfaldlega, virðulegur forseti, hvaða hlutverk við ætlum okkur sem þjóð á þessum örlagaríku tímum.“

Lilja Rannveig horfði á ræðuna hans Snorra og sendi frá sér myndband á TikTok um málið. 

„Þetta var byrjað inni í þinginu. Það var þverpólitísk vinna sem að Alþingi vann að framtíðarstefnumótun og kortleggja hættur og tækifæri í gervigreind. Og hvað þyrfti að gera í lögum til að koma til móts við það,“ segir Lilja en hún var formaður í þeirri nefnd sem hét Framtíðarnefnd. „Hún var tilraunaverkefni á síðasta kjörtímabili. Við héldum málþing á vegum þingsins, við héldum fjöldann allan af lokuðum fundum þar sem að við ræddum við sérfræðinga um gervigreind. Framtíðarnefndin fundaði líka með Þjóðaröryggisráði um það hvernig hægt væri að móta vinnuna saman áfram.“

„Það er eðlilegt að Miðflokkurinn hafi ekki vitað af því að fulltrúar þeirra í nefndinni, Sigmundur Davíð og Bergþór Ólason, þeir mættu bara á einn fund hvor, af 39 fundum. Og vitið þið hvernig Snorri talaði um þessa nefnd?“

Vitnar hún svo í orð Snorra um að leggja ætti niður Framtíðarnefnd og að tíma og fjármunum væri betur varið í eitthvað annað.

Myndbandið hefur fengið mikil viðbrögð og meðal annars hrós frá Birni Leví Gunnarssyni, fyrrum þingmanni Pírata. Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi, kom flokksfélaga sínum til varnar í umræðum á Facebook.

„Skondið svar. Á 4 árum tókst þessari framtíðarnefnd að skila af sér skýrslu um græn umskipti, sem var unnin af utanaðkomandi aðilum, skýrslu um vinnustofu um sviðmyndir netöryggis og svo skýrslu um eigin störf. Við þurfum ekki enn eina nefndina sem elskar bara að skila skýrslum um eigið ágæti til að móta stefnu um gervigreind,“ segir hann.

Lilja Rannveig svaraði honum fullum hálsi:

„Fyrsta árið fór í að læra hvernig störf framtíðarnefnda eru í öðrum löndum því að þetta er öðruvísi verklag en hefur þekkst í þinginu. Svo fórum við í vinnuna um græn umskipti og fundum síðan að það væri mikilvægast fyrir okkur að taka fyrir gervigreind. Það verkefni var í gangi þegar kom að kosningum þannig að ekki var haldið áfram með það,“ segir Lilja Rannveig og bendir á að í Finnlandi hafi slík nefnd verið tilraunverkefni í 11 ár áður en hún var gerð að fastanefnd, nokkrar skýrslur þeirrar nefndar hafi varðað nákvæmlega það sem Snorri hafi talað um í ræðunni.  

„Og getur þú útskýrt fyrir mér hvað þú meinar um skýrslu um eigið ágæti? Ertu að tala um skýrslu til þingsins þar sem sagt er frá störfum nefndarinnar? Eins og allar alþjóðanefndirnar gera líka? Ef svo er, þá er ég með aðra spurningu til þín. Finnst þér ekki eðlilegt að nefndir (sem eru ekki fastanefndir og ekki allir þingmenn taka þátt í) séu með upplýsingagjöf til annara þingmanna og allra, sem lesa vilja, um störf nefndarinnar? Eitt einfaldasta formið til þess að upplýsa aðra innan þingsins er með skýrslugjöf eins og tíðkast í dag. Þá er líka tekin umræða í þingsal um skýrsluna.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab