„Náum vonandi að verja heimavöllinn“
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Bosníu í Laugardalshöll í kvöld í undankeppni HM 2027.
Möguleikar Íslands á að komast áfram úr riðlinum eru ekki miklir. Íslenska liðið þarf að vinna alla fjóra leikina sem eftir eru og treysta á að Ítalía vinni ekki fleiri en einn þeirra leikja sem hún á eftir. Það sé þó ekki útilokað þegar horft sé til andstæðinga Ítala.
Seinni leikur Íslands í glugganum er gegn Tyrkjum í Istanbúl á sunnudag.
„Við þurfum fyrst og fremst að einbeita okkur að okkur sjálfum og sinna okkar verkefni. Við byrjum á Bosníu,“ sagði Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands, við mbl.is.
Líkamlega sterkt lið
Landsliðsþjálfarinn á von á erfiðum leik í kvöld. Hann segir að íslenska liðið þurfi að vera tilbúið að takast á við líkamlega sterkt og kraftmikið lið. Bosníumenn eru með stóra og öfluga leikmenn sem leiki af mikilli hörku.
„Þetta verður krefjandi verkefni en við höfum áður mætt liðum af þessu tagi. Við höfum náð góðum árangri gegn sumum þeirra en átt erfiðara uppdráttar gegn öðrum. Vonandi náum við að verja heimavöllinn og spila vel í þessum leik,“ segir Craig.
Hann segir Bosníumenn hafa sýnt góða takta í leikjum sínum gegn Serbíu í undankeppninni og að íslenska liðið þurfi að mæta líkamlegum styrk þeirra af krafti.
Dario Gjergja, þjálfari Bosníu, stýrði áður landsliði Belgíu og íslenska þjálfarateymið er að einhverju leyti kunnugt leikstíl hans.
„Við þekkjum leikstíl hans að einhverju leyti. Lið Bosníu er með góða leikmenn sem spila í sterkum deildum víðs vegar um Evrópu. Þetta verður því krefjandi verkefni.“
Setjum tóninn fyrir áhorfendur
Craig vonast jafnframt til að sjá góðan stuðning úr stúkunni en segir leikmennina sjálfa þurfa að gefa tóninn.
„Við þurfum að mæta af krafti inn á völlinn og leggja okkur alla fram. Yfirleitt fylgja áhorfendur þá með. Við þurfum því að byrja leikinn af mikilli orku og ástríðu, eins og við gerum yfirleitt, og þannig vonandi ná áhorfendum með okkur,“ sagði hann.
Óvissa með þátttöku Martins
Landsliðsþjálfarinn segir æfingar íslenska liðsins hafa gengið vel síðustu daga og að flestir leikmenn séu heilir heilsu. Lykilmaður íslenska liðsins Martin Hermannsson hefur þó glímt við veikindi en verður vonandi klár í slaginn.
„Martin hefur verið að glíma við veikindi, en verður vonandi tilbúinn að spila. Aðrir leikmenn eru heilir og hafa staðið sig mjög vel á æfingum. Það er mjög jákvætt og æfingarnar hafa gengið vel hingað til,“ sagði Craig Pedersen.
Nánar er fjallað um leik Íslands og Bosníu í kvöld á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗