Tyrkir fengu nei fyrir Íslandsleikinn
Tarık Biberović, tyrkneski landsliðsmaðurinn í körfubolta sem fæddist í Bosníu, missir af leiknum gegn Íslandi í undankeppni heimsmeistaramótsins á sunnudag eftir að Tyrkir völdu Malachi Flynn í eina sætið sem ætlað er leikmanni með áunninn ríkisborgararétt.
Biberović, sem er 25 ára, fæddist í Zenica í Bosníu. Hann gekk til liðs við Dallas Mavericks í sumar eftir átta tímabil með Fenerbahçe í Tyrklandi.
Hann fékk tyrkneskan ríkisborgararétt eftir 16 ára aldur og því telur FIBA hann leikmann með áunninn ríkisborgararétt.
Landslið mega aðeins velja einn leikmann í þeim flokki í hvern leik og Tyrkir geta því ekki teflt fram Biberović og Flynn, sem er fæddur í Bandaríkjunum, saman. Tyrkir óskuðu eftir undanþágu fyrir Biberović en án árangurs.
„Ég var mjög vongóður,“ sagði Ergin Ataman, landsliðsþjálfari Tyrklands, í viðtali við beIN Sports og lýsti vonbrigðum sínum með að FIBA hefði neitað að breyta stöðu Biberović.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗