„Myrkrið ræður ríkjum hér í Kyiv“
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Póllandi og gagnvart Úkraínu, deildi mynd frá Kænugarði í Úkraínu í dag. Árásir Rússa á orku- og gasinnviði í Úkraínu varð þess valdandi að rafmagnsleysi varð í fimm héruðum í landinu, þar á meðal í Kænugarði.
Á myndinni má sjá óvirka ljósastaura og dimma götumynd. Orkan er af skornum skammti vegna árása Rússa.
„Myrkrið ræður ríkjum hér í Kyiv vegna árása Rússa á orkuinnviði,“ segir Friðrik.
„Götulýsing er engin, en bjarmi umferðaljósa og úr gluggum húsa með eigin rafala léttir aðeins sýn…“
Orkuinnviðir skotmörk
Orkuinnviðir hafa í auknum mæli orðið að skotmörkum bæði Rússa og Úkraínumanna. Ekkert lát virðist vera á árásum Rússa en innrás þeirra í Úkraínu hefur staðið yfir frá því 2022.
Vetur harðnar og ástandið er ekki til þess fallið að auka á lífsgæði Úkraínumanna frekar en aðrar árásir Rússa.
Orkumálaráðherra Úkraínu, Artem Nekrasov, segir árásirnar í nótt, sem beindust gegn orkuveri á ónefndum stað, hafi líka haft þau áhrif að kjarnorkuver í Úkraínu, undir yfirráðum Rússa, varð óvirkt.
Önnur árás átti sér stað í morgun sem Rússar beindu að íbúahúsnæði. Ríkisstjórinn í héraðinu Sapórisja sagði sex hafa slasast í henni, þar á meðal tvö börn. Í annarri árás á fjölbýlishús í gær slösuðust í það minnsta fimmtíu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗