Þvingaði fyrrverandi eiginkonu sína inn í bíl
Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi beðið fyrir utan heimili konunnar þegar hún kom heim um kvöldið. Vildi hann að hún færi með honum til fundar við nýjan kærasta sinn en hún neitaði því. Mynd úr safni. Ljósmynd/Colourbox
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á fyrrverandi eiginkonu sína. Maðurinn þvingaði konuna inn í bifreið sína og læsti henni. Þegar konunni tókst að komast út úr bifreiðinni elti maðurinn hana og felldi til jarðar.
Árásin var að mati dómsins gróf, olli konunni töluverðu líkamstjóni og vanlíðan og var knúin áfram af afbrýðisemi.
Dómurinn féll 24. nóvember en atvik málsins áttu sér stað að kvöldi 10. september 2024. Maðurinn og konan höfðu þá verið skilin í um tvö ár eftir átta ára hjónaband. Þau eiga saman þrjú börn.
Beið fyrir utan heimili hennar
Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi beðið fyrir utan heimili konunnar þegar hún kom heim um kvöldið. Vildi hann að hún færi með honum til fundar við nýjan kærasta sinn en hún neitaði því.
Maðurinn ýtti þá við konunni, tók utan um hana og felldi hana til jarðar. Eftir að hún stóð á fætur tók hann aftur utan um hana og þvingaði hana inn í aftursæti bifreiðar sinnar.
Konan greindi lögreglu frá því að þegar hún hefði sagt manninum að hún ætlaði ekki að fara neitt með honum hefði hann sagt henni að þegja, annars myndi hann berja hana þannig að hún sofnaði.
Maðurinn lokaði dyrunum og læsti bifreiðinni en konunni tókst að komast út þegar hann var að fara að setjast undir stýri. Hann elti hana og felldi hana á ný til jarðar.
Konan hlaut marga marbletti á rasskinnum og hægri fótlegg.
Lögregla kölluð til við Smáralind
Rannsókn málsins hófst kvöldið eftir þegar lögregla var kölluð á bifreiðastæði við Smáralind í Kópavogi vegna tilkynningar konunnar um áflog á milli fyrrverandi eiginmanns hennar og nýs kærasta.
Samkvæmt framburði kærastans hafði maðurinn ítrekað haft samband við hann og haft í hótunum við hann. Kærastinn hefði að lokum samþykkt að hitta manninn við Smáralind.
Maðurinn var handtekinn og reyndist vera ölvaður. Við skýrslutöku hjá lögreglu morguninn eftir sagðist hann hafa verið afbrýðisamur og eiga erfitt með að sleppa takinu af fyrrverandi eiginkonu sinni vegna þráhyggju.
Viðurkenndi hann meðal annars að hafa ýtt konunni að bifreiðinni og komið henni fyrir í sæti í bifreiðinni.
Sagðist hafa játað til að komast heim
Fyrir dómi neitaði maðurinn hins vegar sök og sagði fyrri framburð sinn hjá lögreglu með öllu rangan. Hann og konan hefðu rifist en ekkert líkamlegt ofbeldi átt sér stað af hans hálfu.
Hann kvaðst hafa verið hræddur og í miklu uppnámi þegar hann gaf skýrslu hjá lögreglu og sagðist hafa verið tilbúinn að segja hvað sem væri til að komast heim. Þá hélt hann því fram að hann hefði enn verið undir áhrifum áfengis við skýrslutökuna.
Dómurinn benti á að maðurinn hefði aðeins viðurkennt hluta þeirrar háttsemi sem honum var gefin að sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Það samrýmdist ekki þeirri skýringu hans að hann hefði játað allt til að losna úr haldi lögreglu.
Þá væri ekkert fram komið sem styddi að maðurinn hefði enn verið ölvaður þegar skýrsla var tekin af honum eftir að hann hafði dvalið í fangageymslu yfir nótt.
Taldi dómurinn breyttan framburð mannsins ótrúverðugan og skýringar hans á honum órökréttar.
Heyrði konuna kalla eftir hjálp
Framburður konunnar var hins vegar að mati dómsins í meginatriðum stöðugur og trúverðugur. Fékk hann stoð í fyrri framburði mannsins hjá lögreglu, ljósmyndum af áverkum konunnar og læknisvottorði.
Læknir sem skoðaði konuna níu dögum eftir árásina staðfesti fyrir dómi að áverkar hennar gætu samrýmst lýsingu hennar á atburðarásinni.
Þá greindi kærasti konunnar frá því fyrir dómi að hún hefði eitt sinn hringt í hann og hefði hann þá heyrt öskur og konuna kalla eftir hjálp. Tengdi hann símtalið við frásögn konunnar af því þegar fyrrverandi eiginmaður hennar reyndi að fá hana til að vísa sér á heimili hans.
Var það niðurstaða dómsins að sannað væri svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem lýst var í ákæru.
Vildi ekki að hann yrði dreginn fyrir dóm
Konan greindi frá því fyrir dómi að hún hefði talið málinu lokið og ekki viljað að fyrrverandi eiginmaður hennar yrði dreginn fyrir dóm. Sagði hún hann góðan föður og kvaðst ekki vilja valda honum vandræðum.
Dómurinn tók hins vegar fram að saksókn vegna brotsins væri ekki háð kröfu brotaþola. Ákæruvaldið hefði metið það svo að almannahagsmunir kröfðust þess að málið yrði höfðað og hefði afstaða konunnar því ekki áhrif á úrlausn þess.
Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess hversu gróf árásin var, að hún beindist að fyrrverandi eiginkonu mannsins og barnsmóður og að háttsemi hans hefði verið knúin áfram af afbrýðisemi.
Var maðurinn dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, og gert að greiða rúmlega eina milljón króna í sakarkostnað.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗