Ein vinsælasta jólasmákakan verður að ísblómi

Árdís Eva Bragadóttir og Sóley Rós Þórðardóttir tóku þátt í framleiðsluferlinu frá A til Ö í samstarfi við Emmessís. Samsett mynd

Árdís Eva Bragadóttir og Sóley Rós Þórðardóttir, eigendur MOON veitinga, hafa þriðja árið í röð tekið höndum saman við Emmessís um gerð Söru-ísblómsins. Í ísblóminu er úrvalsrjómaís frá Emmessís á sörubotni sem þær Árdís og Sóley handgera. Ísblómið er hjúpað rjómasúkkulaði. Það seldist upp síðustu tvö ár og verður því framleitt í töluvert meira magni fyrir þessi jól.

Hugmyndin kviknaði í aðdraganda jólanna 2024 þegar þær Árdís og Sóley voru að ræða hvað þær gætu gert nýtt fyrir jólin. „Sóley spurði mig hvort það væri ekki góð hugmynd að gera söruís. Okkur fannst báðum að við yrðum að heyra í Emmessís og sendum Kristjáni framkvæmdastjóra tölvupóst til að athuga hvort hann væri til í samstarf,“ segir Árdís.

„Mér leist svo vel á hugmyndina að ég hringdi strax í þær. Við hjá Emmessís höfum gaman af því að þróa nýjar vörur með snillingum í sínu fagi og það er óhætt að segja að þær séu ókrýndir Íslandsmeistarar í sörugerð,“ segir Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri Emmessís.

Hugmyndin að ísblóminu kviknaði fyrir tveimur árum.

Hugmyndin að ísblóminu kviknaði fyrir tveimur árum. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta ísblómið var gert með klassísku jólasöruna þeirra Árdísar og Sóleyjar að fyrirmynd. Hjá Emmessís var þróaður rjómaís sem minnir á kremið á sörunni. Þær sáu svo um að baka möndlubotninn og ísblómið var hjúpað suðusúkkulaði. Árið eftir varð rjómasúkkulaðisaran þeirra fyrir valinu og þeim þótti mikilvægt að nota sama rjómasúkkulaði á ísblómið og þær nota á sörurnar sínar.

„Við ætluðum upphaflega bara að gera þetta fyrir ein jól og þá í litlu magni. Svo fengum við skilaboð frá fólki sem var alls ekki sátt við að hafa misst af sínu ísblómi. Nú erum við að gera þetta í þriðja sinn og ætli við megum ekki segja að þetta sé orðið að jólahefð. Mér þykir virkilega vænt um þetta samstarf,“ segir Kristján.

Árdís og Sóley fengu líka að heyra frá fólki sem hafði leitað að ísblóminu í allt að fimm verslunum. Það var meðal annars fljótt að seljast upp í Búðardal, þar sem sendingin kláraðist samdægurs. Það kom þeim hjá Emmessís nokkuð á óvart þar til í ljós kom að Sóley er fædd og uppalin þar. Heimamenn vildu að sjálfsögðu styðja við sína konu og óskuðu eftir stærri sendingu svo fleiri fengju að smakka.

Hver stenst söru-ísblóm? Enginn! Ljósmynd/Aðsend

Gera 80 til 100 þúsund sörur fyrir jólin

Árdís og Sóley eru báðar matreiðslumeistarar. Þær lærðu saman á Hilton, luku meistaranámi árið 2019 og stofnuðu MOON veitingar ári síðar. Þær byrjuðu að selja jólasörur í upphafi faraldursins og hafa þær fengist í öllum verslunum Hagkaups frá árinu 2020. Í ár bætast ellefu verslanir Krónunnar við.

Þær áætla að gera á bilinu 80 til 100 þúsund sörur fyrir þessi jól. Auk þeirra klassísku gera þær sörur með rjómasúkkulaði, espressósörur og nú síðast sörur með kókos og rommi.

„Það er alveg óhætt að kalla þetta vertíð hjá okkur. Við erum löngu byrjaðar að baka og höldum áfram til 22. desember. Þá förum við í jólafrí. Ísblómið er eitt af skemmtilegustu verkefnum ársins hjá okkur. Við vorum ótrúlega spenntar og stoltar þegar við fengum að gera þetta með Emmessís í fyrsta sinn. Það sést nú alveg á okkur á myndunum úr framleiðslunni,“ segja þær Árdís og Sóley.

Það var kátt á hjalla þegar Söru-ísblómin komu eftir færibandinu.

Það var kátt á hjalla þegar Söru-ísblómin komu eftir færibandinu. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab