Kona skipstjórans: „Erfitt að finna orð“
„Eftir harmleikinn um borð í Jökli ÞH í gærkvöldi er erfitt að finna orð yfir allt sem ég finn fyrir,“ skrifar kona Kristins Hrannars Hjaltasonar, sem skipstjóra á Jökli ÞH 299 sem sökk síðdegis í gær, í færslu á Facebook.
Hún segist svo innilega þakklát fyrir að hann sé kominn heim til hennar og barnanna þeirra. Á sama tíma sé hún harmi slegin vegna þeirra fjölskyldna sem fá ástvini sína ekki aftur heim. Þrír fórust þegar báturinn sökk.
Þakkar þeim sem komu til bjargar
„Af öllu hjarta þakka ég Landhelgisgæslunni, áhöfnum þyrlunnar og flugvélarinnar, björgunarsveitum Landsbjargar, áhöfnum skipanna sem komu til aðstoðar og öllum sem samhæfðu björgunina,“ skrifar Patrícia Mikulová, kona Kristins.
Þá þakkar hún heilbrigðisstarfsfólki auk allra þeirra sem hlúðu að skipverjunum eftir að þeir komu í land rétt fyrir miðnætti í gær.
„Hugrekki ykkar, elja og umhyggja skipta fjölskyldu okkar meira máli en orð fá nokkurn tíma lýst.“
Vottar aðstandendum samúð
„Að geta haldið utan um manninn minn aftur og að börnin okkar geti faðmað pabba sinn er eitthvað sem ég mun aldrei taka sem sjálfsögðum hlut,“ segir í færslunni.
Hún vottar aðstandendum þeirra sem misstu ástvini í slysinu sína dýpstu samúð. „Ég veit að engin orð geta linað missi ykkar.“
„Litla brotna hjartað mitt er hjá ykkur öllum,“ skrifar hún að lokum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗