Fleiri tilkynningar borist í kjölfar netárásanna
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir tilkynningar af margvíslegum toga hafa borist í kjölfar netárásanna í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Fleiri tilkynningar vegna netöryggismála hafa borist frá því síðdegis í gær. Ekki liggur enn fyrir hvort tengsl séu á milli netárásanna á Reykjavíkurborg og Bláa lónið eða hvort sömu aðilar standi að baki þeim.
Þetta segir Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í samtali við mbl.is.
Spurður hvort fleiri aðilar hafi orðið fyrir netárásum segir Runólfur að tilkynningar hafi borist síðdegis í gær, í gærkvöldi og í morgun.
„Þær hafa verið margvíslegs eðlis,“ segir hann.
Unnið fram á nótt
Runólfur segir að unnið hafi verið fram á nótt við að ná utan um netárásina á Reykjavíkurborg. Samkvæmt upplýsingum frá netöryggissveitinni CERT-IS hafi gengið ágætlega að undirbúa endurreisn þeirrar þjónustu sem tekin var úr sambandi.
Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag er búið að komast fyrir árásina á tölvukerfi borgarinnar og vonir standa til þess að hægt verði að byrja að opna aftur fyrir rafræna þjónustu í dag.
Á stöðufundi í morgun var farið yfir stöðuna í kjölfar þess að viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða var virkjuð á óvissustigi í gær.
Runólfur segir verkefni dagsins meðal annars hafa falist í því að fara yfir þær ráðstafanir sem gripið hefur verið til og miðla upplýsingum til netöryggissérfræðinga hjá fyrirtækjum og stofnunum.
Horfa til þróunar síðustu vikna
Spurður um forsendur þess að viðbragðsáætlunin var virkjuð segir Runólfur að horft sé til þróunar síðustu vikna en ekki einungis undanfarinna daga.
Tilvikum hafi fjölgað samhliða aukinni notkun gervigreindar við netárásir og tíminn sem árásirnar taka hafi styst verulega.
Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi að netógnin hefði farið stigvaxandi á undanförnum vikum.
Runólfur ítrekar að mat almannavarna sé að almenningur þurfi ekki að óttast að svo stöddu.
Hann vekur jafnframt sérstaka athygli á leiðbeiningum CERT-IS fyrir fyrirtæki og stofnanir vegna aukinnar netógnar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗