Skipstjóri Svans: Komum að tveimur lífvana mönnum
Hjalti segir að mikil ölduhæð hafi verið á slysstaðnum og talsverður vindur. Samsett mynd/Aðsend mynd/Ljósmynd/Landsbjörg
Skipstjóri uppsjávarskipsins Svans RE segir að aðkoman fyrir austan, þar sem mannskætt sjóslys varð í gær, hafi verið vægast sagt nöturleg.
Skipið kom fyrst á vettvang ásamt skuttogaranum Harðbaki, segir skipstjórinn Hjalti Einarsson aðspurður.
„Ljós úti um allt“
Svanur byrjaði á því að sigla í átt að svokölluðu AIS-merki. Í ljós kom að þar var á ferðinni mannlaus björgunarbátur frá skipinu sem sökk, Jökli ÞH. 17 manns voru um borð og þar af fórust þrír skipverjar.
„Eftir það vorum við komnir inn í svæði þar sem voru víða ljós úti um allt, sem við vorum að reyna að rýna í og skoða,“ greinir Hjalti frá. Um var að ræða ljós frá flotbjörgunarbúningum en einnig frá vestum sem enginn var í en höfðu „flotið út um allt“. Sigla þurfti varlega um svæðið.
Náðum ekki að taka þá um borð
Á þessum tímapunkti vissu Hjalti og félagar ekki hvenær þyrla Landhelgisgæslunnar kæmi á vettvang en það átti fljótt eftir að breytast.
„Hún kom sem betur fer. Við sáum hana fljótlega og það var mikill léttir að sjá það,“ greinir Hjalti frá og bætir við: „Svo komum við þarna að tveimur, því miður, lífvana mönnum sem við náðum ekki að taka um borð en Gæslan tók.“ Erfitt hafi verið að upplifa það, eins og gefur að skilja.
Hann segir að sem betur fer hafi Gæslan getað tekið við keflinu því enginn hægðarleikur sé að taka menn upp úr sjónum öðruvísi en að notast við léttbát. Engar aðstæður hafi verið til þess.
„Sérstaklega ef menn eru farnir þá er mjög erfitt að ná þeim upp.“
Sóttu björgunarbátinn
Hjalti segir að mikil ölduhæð hafi verið á slysstaðnum og talsverður vindur.
„Við höldum áfram að skima og vissum ekkert nákvæmlega hver staðan var. Svo kemur það í loftið að allir séu komnir um borð og við náum í þennan bát sem við komum að í upphafi og tökum hann um borð.“
Á hann þar við björgunarbátinn sem var um borð í Jökli ÞH.
Á þessum tímapunkti hafi formlegri leit verið lokið.
Áfallahjálp í boði
Tíu manna áhöfn Svans RE er komin í land og hefur henni verið boðin áfallahjálp til að vinna úr því sem gerðist.
„Áhöfnin vill senda öllum aðstandendum dýpstu samúðarkveðjur,“ segir Hjalti að lokum.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


