Rætt um líkindi við slys við Færeyjar
Orsök þess að Jökull fórst verður ólíklega staðfest fyrr en í sjóprófum, en í kjölfar slyssins hefur verið haft á orði sjómanna í millum að líkindi kunni að vera milli þessa slyss og þess þegar færeyska línuskipið Kambur fékk á sig brotsjó og sökk suður af Akrabergi á Suðurey syðst í Færeyjum í febrúarbyrjun 2024.
Haft hefur verið á orði að það skip hafi verið hannað eins og Jökull, en í því tilviki var slysið rakið til hönnunargalla sem leiddi til þess að síðulúga festist og sjór flæddi inn eftir að skipið fékk á sig brot.
Í umfjöllun á vef Aflafrétta segir að mikill sjór hafi komist inn um netalúgur aftast á Jökli í óveðrinu sem valdið hafi því að skipið tók að halla hratt á stjórnborðssíðuna áður en það sökk.
Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar kom fram í neyðarboði frá skipstjóra Jökuls að lúga hefði brotnað á skipinu að aftan og að leki væri kominn að því.
Í umfjöllun FishingDaily frá 29. apríl 2025 um ástæðurnar fyrir því að Kambur fórst og einhverjir hafa verið að deila á milli sín eftir að Jökull fórst segir að ástæða þess að færeyska skipið fórst hafi verið samspil ófullnægjandi hönnunar og erfiðra veðurskilyrða. Það hafi leitt til þess að sjór komst inn í skipið og stöðugleiki þess skertist.
Vitnað í sjópróf vegna slyssins við Færeyjar.
Hvort draga megi einhverjar samlíkingar á milli þessara atburða á eftir að koma í ljós.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗