Báturinn sökk á 19 mínútum: Netalúga gaf sig

Jökull SH sökk á 19 mínútum.

Jökull SH sökk á 19 mínútum. Ljósmynd/GPG Seafood

Ástæða þess að Jökull SH sökk í gær var brotin netalúga sem gerði það að verkum að sjór fór óhindrað inn um stjórnborða skipsins.

Þetta kemur fram í skriflegu svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn mbl.is.

Þá kemur jafnframt fram að skipið hafi verið horfið í sæ 19 mínútum eftir að neyðarkallið barst frá skipstjóra klukkan 17:05.

Var ekki kominn á miðin

Menn kunnugir sjómennsku segja að af myndbandi frá skipverja sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum megi sjá sjó flæða um rými þar sem netin eru geymd á línu- og netabátnum.

Af hraða skipsins á Marine Traffic að dæma var skipið ekki búið að leggja netin þegar ósköpin dundu yfir.

Þá var skipið ekki komið á hefðbundin grálúðumið sem menn kalla í daglegu tali „Rauða torgið“ og eru nokkru sunnar en þar sem báturinn fór niður á Glettingsdýpi um 60 sjómílur austur af landinu.

Einn viðmælanda mbl.is fullyrðir að netalúgan hafi gefið sig þannig að „glussar“ sem ætlað er að loka lúgunni hafi gefið sig.

Þá hafi átt að vera léttur veggur innanborðs sem hafi það hlutverk að aðskilja rými sem hafi gefið sig. Fyrir vikið hafi sjór flætt óhindrað inn í bátinn.

Tímalínan frá Landhelgisgæslunni

Kl. 17:05 Skipstjórinn á Jökli hefur samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð og segir lúgu brotna að aftan og leka kominn að skipinu. Segir 17 um borð. Stjórnstöð biður áhöfn að fara í flotgalla.

Kl. 17:06 Einingar boðaðar út og öll skip beðin um að halda á staðinn.

Kl. 17:17 Skipstjórinn hefur samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og segir alla komna í flotgalla. Áhöfn sé að yfirgefa skipið. Nái ekki að losa björgunarbát og hafi misst hinn björgunarbátinn frá skipinu. Skipið sé að sökkva.

17:24 Kemur merki til stjórnstöðvar í gegnum gervihnött frá sjálfvirkum búnaði um borð í skipinu sem gefur til kynna að það sé sokkið.

17:44 Björgunarskip á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra taka eitt af öðru að tilkynna um brottför úr höfn, áleiðis á slysstað.

17:58 Flugtak TF-GRO frá Reykjavíkurflugvelli.

18:06 Varðskipið Freyja heldur frá Siglufirði

18:50 TF-SIF tekur á loft frá Reykjavíkurflugvelli.

19:12 Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar ræða við áhöfn Jökuls sem segir níu manna hóp vera saman í sjónum. (Síðar kom í ljós að þeir voru 11)

19:56 TF-GRO lendir á Höfn og tekur eldsneyti. Hlutir úr þyrlunni eru fjarlægðir til að létta hana.

20:09 TF-SIF komin yfir vettvang. Áhöfnin varpar tveimur björgunarbátum úr flugvélinni en áhöfn Jökuls náði ekki til þeirra.

20:22 TF-GRO tekur á loft frá Höfn í Hornafirði

21:15 TF-GRO nær sambandi við áhöfn skipsins

21:21 TF-GRO er komin á vettvang sem og fiskiskipin Svanur og Harðbakur

21:30 TF-GRO búin að hífa fjóra um borð

21:51 Áhöfn Harðbaks sér fimm í sjónum og skýtur línu til þeirra.

22:39 Björgunarskipið Hafbjörg á vettvangi

22:54 Allir 17 komnir um borð í þyrluna.

23:37 TF-GRO lendir með áhöfn Jökuls á Egilsstöðum

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab