Hrósaði Stefáni í hástert
Alfons Sampsted telur Go Ahead Eagles geta nýtt styrkleika Stefáns Inga Sigurðarsonar betur í loftinu. Uppöldu Blikarnir leika saman með hollenska knattspyrnufélaginu.
„Hann veit hvar hann á að vera í teignum. Það sem við megum kannski vera aðeins betri í er að koma boltanum á hann í loftinu því þar er hann bestur í að klára færin,“ sagði Alfons í samtali við Morgunblaðið.
Hann fór lofsamlegum orðum um framherjann.
„Það er gaman að vera með honum og maður sér að það er mikill markaskorari í honum. Hann er með auga fyrir staðsetningum í teignum og það verður spennandi að sjá hvert leiðin liggur fyrir hann. Hann er búinn að standa sig vel.“
Alfons taldi liðið eiga raunhæfa möguleika á að berjast um umspilssæti um þátttöku í Evrópukeppni.
„Það er alveg áskorun fyrir okkur því við erum með lítinn hóp en þetta er raunhæft miðað við frammistöðuna undanfarið, finnst mér.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗