Óttast olíumengun við Ibiza
Skipið var á leið frá hafnarborginni Algeciras á Suður-Spáni til Barselóna þegar það sökk norður af Ibiza. Ljósmynd/Colourbox
Spænsk stjórnvöld vinna nú að því að koma í veg fyrir hugsanleg umhverfisspjöll í Miðjarðarhafi eftir að tankskip, sem flutti allt að 7.000 tonn af dísilolíu, sökk við spænsku eyjuna Ibiza í nótt. Einn skipverji lést.
Tankskipið Med Emre, sem sigldi undir fána Möltu, var á leið frá hafnarborginni Algeciras á Suður-Spáni til Barselóna þegar það sökk norður af Ibiza, sem er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Frá þessu greina viðbragðsaðilar á Baleareyjum.
Öllum 17 skipverjum var bjargað en einn þeirra var síðar úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi á Ibiza. Sex skipverjar hlutu minniháttar meiðsl að sögn björgunaraðila og var þar einkum um ofkælingu að ræða.
Samkvæmt upplýsingum frá Kpler, fyrirtæki sem heldur utan um gögn um skipaflutninga, flutti skipið um 66 þúsund tunnur af unnum olíuafurðum.
Ekki liggur fyrir hvað olli því að skipið sökk.
Engin merki um mengun
Heimildarmenn innan spænsku stjórnsýslunnar segja að samkvæmt nýjustu upplýsingum frá björgunarskipi á svæðinu hafi hvorki sést brak úr skipinu né hlutir á floti eða merki um mengun.
Viðbragðsáætlun spænskra stjórnvalda vegna mengunar í hafi hefur verið virkjuð en heimildarmennirnir taka fram að það þýði ekki að mengun hafi greinst við strendur landsins.
Bátur og flugvél spænsku sjóbjörgunarþjónustunnar hafa verið send á svæðið til að kanna hvort umhverfisspjöll hafi orðið, að sögn viðbragðsaðila á Baleareyjum.
Spænsk almannavarnayfirvöld hafa jafnframt óskað eftir því að jarðvöktunarkerfi Evrópusambandsins, Kópernikus, verði nýtt til að afla mynda af svæðinu.
Sérstaklega viðkvæmt hafsvæði
Emilio Rodríguez Díaz, sérfræðingur í siglingaöryggi við háskólann í Cádiz, sagði í samtali við spænsku útvarpsstöðina Cadena SER að hafsvæðið þar sem skipið sökk væri sérstaklega viðkvæmt.
Bærist mengun út í hafið gæti hún haft áhrif á ferðaþjónustu á svæðinu og sjávargrös í Miðjarðarhafi, sem taka til sín mikið magn koltvísýrings, einnar þeirra lofttegunda sem valda hlýnun jarðar.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
