Klásúla í samningi Freys - Gæti Alfreð reynt að ráða Solksjær í hans stað?

Ole Gunnar Solskjær, fyrrum stjóri Manchester United, hefur verið nefndur sem mögulegur arftaki Freys Alexanderssonar hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Rosenborg.

Freyr er sterklega orðaður við stjórastarfið hjá Swansea en hann hefur staðfest að velska félagið hafi gert honum tilboð.

Í hlaðvarpsþættinum Spiss Vinkel hjá norsku sjónvarpsstöðinni TV 2 var rætt um mögulega arftaka Freys. Þar voru nöfn Solskjær, Hans Erik Ödegaard og Erling Moe nefnd.

Yaw Amankwah, sérfræðingur TV 2, er gagnrýninn á hvernig Freyr hefur haldið á málunum.

„Þetta er sorglegt fyrir Rosenborg. Stuðningsmennirnir hafa fullan rétt á því að vera vonsviknir og upplifa sig svikna,“ sagði Amankwah.

Mynd: Lyngby

Samkvæmt heimildum TV 2 er klásúla í samningi Freys sem gerir honum kleift að losna undan samningnum gegn greiðslu en Alfreð Finnbogason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg, vildi ekki staðfesta það.

Freyr hefur unnið tólf af sextán deildarleikjum sínum með Rosenborg og komið liðinu úr fallsæti í baráttuna um verðlaunasæti og Evrópusæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab