Freistaði þess að fá úrskurðarnefnd til að skikka lögmann til að taka mál hans að sér
Úrskurðarnefnd lögmanna hefur vísað frá kvörtun aðila sem taldi lögmann stéttarfélags síns hafa brugðist sér í deilu við fyrrverandi vinnuveitanda. Var það mat nefndarinnar að kærandi hefði misskilið hlutverk lögmannsins. Lögmanninum umrædda hefði verið falið að meta hvort stéttarfélagið hefði afgreitt mál kærandans með réttum hætti. Lögmaðurinn hefði þó aldrei tekið að sér að reka sjálfur mál kærandans gegn fyrrum vinnuveitandanum.
Úrskurðurinn féll 19. nóvember sl.
Forsaga málsins er sú að kærandinn taldi sig eiga inni laun hjá fyrrum vinnuveitanda og eins að uppsögn hefði verið ólögmæt. Leitaði hann því til stéttarfélags síns eftir aðstoð við að innheimta vangreidd laun og auk þess að sækja skaða- og miskabætur í málinu. Stéttarfélagið sagðist geta aðstoðað kæranda við að innheimta vangreidda desemberuppbót og að fá orlofslaun leiðrétt. Aðstoð félagsins takmarkaðist þó við kjarasamning og þyrfti kærandi því sjálfur að fá lögmann vegna bótakrafna.
Maðurinn sætti sig ekki við þessi svör. Stéttarfélagið ákvað að hafa vaðið fyrir neðan sig og bað lögmann sinn að meta hvort afgreiðsla á málinu hefði verið rétt. Lögmaðurinn taldi svo vera og var kæranda því tilkynnt að ákvörðun félagsins stæði.
Átti kærandi þá einhver samskipti áfram við lögmanninn, meðal annars um kæruleiðir og hlutverk úrskurðarnefndar hjá stéttarfélaginu. Síðan leitaði kærandi til úrskurðarnefndar lögmanna og kvartaði þar undan framgöngu lögmannsins. Taldi hann lögmanninn hafa kynnt sér gögn máls illa, vanrækt að gæta hagsmuna sinna og gefið villandi upplýsingar um kæruleiðir. Krafðist kærandi þess meðal annars að lögmanninum yrði gert að veita sér lögfræðiaðstoð og að mál hans yrði endurskoðað.
Lögmaðurinn hafði eins mótmælt kærunni í málinu og bent á að þar væri kærandi í raun að krefjast þess að úrskurðarnefnd lögmanna skikki lögmann til að veita aðstoð. Slíkt falli ekki undir valdsvið nefndarinnar.
Úrskurðarnefnd lögmanna tók fram að í vissum tilvikum væri hægt að leita til nefndarinnar vegna framgöngu lögmanna þrátt fyrir að hann hefði ekki starfað í þágu kæranda. Hér væri þó um að ræða ágreining um ákvörðun stéttarfélags og hversu langt það væri tilbúið að ganga til að aðstoða félagsmenn. Stéttarfélagið sjálft bæri ábyrgð á þeirri ákvörðun. Ekkert benti til þess að téður lögmaður hefði brotið siðareglur. Var málinu því vísað frá þar sem kærandi þótti ekki eiga lögvarða hagsmuni í málinu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗