Efnilegur táningur til Liverpool

Sidy Barhama Ndiaye verður leikmaður Liverpool á 18 ára afmælisdaginn.

Sidy Barhama Ndiaye verður leikmaður Liverpool á 18 ára afmælisdaginn. Ljósmynd/FIFA

Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur tryggt sér kauprétt á senegalska kantmanninum Sidy Barhama Ndiaye sem félagið getur nýtt í janúar 2028, þegar hann verður orðinn 18 ára.

Hinn 16 ára gamli Ndiaye spilar með Diambars FC í Senegal og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í efstu deild á síðasta tímabili. Hann var til reynslu hjá akademíu Liverpool síðasta sumar.

Ndiaye leikur nú á HM U-17 ára í Katar, þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp tvö í 9:0-sigri Senegal á Kúbu.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab