Gular viðvaranir um allt land: Rigning og hvassviðri

Vindaspá klukkan 16 í dag.

Vindaspá klukkan 16 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Dregið hefur úr vindi í nýjustu spám á Breiðafirði og Vestfjörðum og hefur því Veðurstofa Íslands uppfært viðvaranir í samræmi við það. 

Austan- og suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu er spáð í flestum landshlutum og gefnar hafa verið út gular viðvaranir, bæði vegna vinds í mörgum landshlutum og rigningar á Suðausturlandi og Austfjörðum. 

„Það er byrjað að hvessa á Austurlandi og það er byrjað að rigna,“ segir Elísabet Þórdís Hauksdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni, í samtali við mbl.is.

„Það er byrjað að hvessa annars staðar en það er ekki komið á Vesturlandið,“ segir hún jafnframt.

„Það eru ennþá viðvaranir í gildi en þær eru meira í nótt og á morgun á Breiðafirði og Vestfjörðum.“

Veðurvefur mbl.is.

Austan- og suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu er spáð í flestum landshlutum. Kort/Veðurstofa Íslands

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab