Hetjurnar okkar - Þetta eru áhafnirnar sem stóðu að björguninni

Landhelgisgæslan hefur sent frá sér myndir af áhöfnununum sem tóku þátt í björguninni í gær. Þrír sjómenn létust og Flugvélin TF-Sif var fyrst á vettvang um kl. 20 og fann mennina. Þyrlan TF-Gró var komin á vettvang kl. 21:15. Um svipað leyti komu skipin Svanur EA og Harðbakur á vettvang. Þyrlan lenti svo á Egilsstöðum kl. 23:45 í nótt.

Áhafnarmeðlimir TF-GRÓ sem voru um borð við björgunina í gær: Helgi Guðnason, stýrimaður, Bergur Stefánsson, læknir, Jens Sigurðarson, flugstjóri, Elvar Már Sigurðsson, stýrimaður, Brynhildur Ásta Bjartmarz, flugmaður, Jón Tómas Vilhjálmsson, flugvirki.

Áhafnarmeðlimir TF-SIF: Gunnar Guðmundsson, flugstjóri, Örn Sigurgeirsson, flugmaður, Magnús Örn Einarsson, stýrimaður, Jóhannes Eyfeld, stýrimaður, Teitur Gunnarsson, stýrimaður.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðinum að það hafi við vikið frá verklagi til að koma að björguninni.

„Við áttum samtal ég og flugstjórinn í gær þegar útkallið kom og ræddum þetta. Reglan er sú að fara ekki lengra en tuttugu mílur frá ströndu nema hafa backup. Það má segja að hann hafi þverbrotið allar reglur og það ætti kannski að áminna hann. En, þarna eru sautján menn í sjónum, þeir ræddu þetta sín á milli og það voru allir sammála um að fara. Í raun var enginn vafi með það. En þetta eru ekki góðar aðstæður til að setja áhafnir í, að þurfa að taka þessa ákvörðun,“ segir Georg.

Sjá einnig: „Það má segja að hann hafi þverbrotið allar reglur og það ætti kannski að áminna hann“

Slysavarnarfélagið Landsbjörg sendi frá sér myndskeið fyrr í dag um aðstæðurnar sem við var að eiga. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab