Gular viðvaranir um allt land: Rigning og hvassviðri
Dregið hefur úr vindi í nýjustu spám á Breiðafirði og Vestfjörðum og hefur því Veðurstofa Íslands uppfært viðvaranir í samræmi við það.
Austan- og suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu er spáð í flestum landshlutum og gefnar hafa verið út gular viðvaranir, bæði vegna vinds í mörgum landshlutum og rigningar á Suðausturlandi og Austfjörðum.
„Það er byrjað að hvessa á Austurlandi og það er byrjað að rigna,“ segir Elísabet Þórdís Hauksdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni, í samtali við mbl.is.
„Það er byrjað að hvessa annars staðar en það er ekki komið á Vesturlandið,“ segir hún jafnframt.
„Það eru ennþá viðvaranir í gildi en þær eru meira í nótt og á morgun á Breiðafirði og Vestfjörðum.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
