Skærasta stjarnan ekki með gegn Íslandi
Džanan Musa, skærasta körfuboltastjarna Bosníu, verður ekki með bosníska landsliðinu gegn því íslenska í undankeppni HM í Laugardalshöll í kvöld vegna skuldbindinga sinna við Euroleague-liðið Dubai Basketball.
Musa kemur til móts við hópinn fyrir leikinn gegn Litháen á sunnudag.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.30. Bæði lið hafa unnið þrjá leiki og tapað fimm í J-riðli og þurfa á sigri að halda til að halda vonum sínum um sæti á HM 2027 í Katar á lífi.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗