Áhöfnin sem vann björgunarafrekið

Innlent | mbl | 26.11.2026 | 14:25

Helgi Guðnason, stýrimaður, Bergur Stefansson læknir, Jens Sigurðsson flugstjóri, Elvar Már Sigurðsson stýrimaður, Brynhildur Ásta Bjartmarz, flugmaður, Jón Tómas Vilhjálmsson, flugvirki Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áhöfn TF-GRÓ, þyrlu Landhelgisgæslunnar, vann mikið björgunarafrek þegar henni tókst að bjarga skipverjum Jökuls SH um borð í þyrluna í gærkvöldi.

Áhöfnin flaug í aftakaveðri austur á land, tók eldsneyti á Höfn í Hornafirði og hífði skipverjana upp úr sjónum um 60 sjómílur frá Glettingi við afar erfiðar aðstæður áður en hún flutti þá til aðhlynningar á heilsugæslunni á Egilsstöðum.

Áhöfnina skipa Helgi Guðnason, stýrimaður, Bergur Stefansson, læknir, Jens Sigurðsson, flugstjóri, Elvar Már Sigurðsson, stýrimaður, Brynhildur Ásta Bjartmarz, flugmaður, og Jón Tómas Vilhjálmsson, flugvirki.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab