Norse Atlantic stöðvar flug og segir gjaldþrot yfirvofandi
Erlent | mbl | 26.11.2026 | 14:24
Norse, sem var stofnað árið 2021 og sérhæfir sig í langflugi, hafði þegar varað við því í gær að fjárhagsstaða þess væri alvarleg. Ljósmynd/Wikipedia.org
Norska lággjaldaflugfélagið Norse Atlantic greindi frá því í dag að það rambaði á barmi gjaldþrots og aflýsti öllum flugferðum dagsins.
Norse, sem var stofnað árið 2021 og sérhæfir sig í langflugi, hafði þegar varað við því í gær að fjárhagsstaða þess væri „alvarleg“, sem varð til þess að hlutabréf félagsins hríðféllu um 85 prósent.
„Ef ekki tekst í snarhasti að tryggja fjármögnun til skamms tíma hyggst stjórnin óska eftir gjaldþrotaskiptum,“ sagði félagið í tilkynningu til kauphallarinnar í Ósló.
Öllum flugferðum fimmtudagsins hefur verið aflýst „þar til ljóst verður hvort unnt sé að koma á raunhæfri fjármögnunarlausn“.
Norse kvaðst eiga „í viðræðum við fjárfesta um mögulega yfirtöku sem fæli í sér fjármögnunarlausn“, án þess að greina nánar frá því hverjir þeir væru.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗