Skærasta stjarnan ekki með gegn Íslandi

Džanan Musa verður ekki með í kvöld.

Džanan Musa verður ekki með í kvöld. Ljósmynd/FIBA

Džanan Musa, skærasta körfuboltastjarna Bosníu, verður ekki með bosníska landsliðinu gegn því íslenska í undankeppni HM í Laugardalshöll í kvöld vegna skuldbindinga sinna við Euroleague-liðið Dubai Basketball.

Musa kemur til móts við hópinn fyrir leikinn gegn Litháen á sunnudag.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.30. Bæði lið hafa unnið þrjá leiki og tapað fimm í J-riðli og þurfa á sigri að halda til að halda vonum sínum um sæti á HM 2027 í Katar á lífi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab