Pólitískt þref og upphrópanir ekki sæmandi á stundu sem þessari – „Erum öll með einhverjum hætti breytt í dag“

Kristinn H. Guðnason

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 14:21

Guðmundur Brynjólfsson djákni og rithöfundur.

Guðmundur Brynjólfsson, djákni og rithöfundur, segir að sér finnist upphrópanir og pólitískt þref ekki sæmandi á stundu sem þessari þegar þrír menn hafa farist í sjóslysi. Öll séum við breytt eftir þetta og þurfum að skoða okkur sjálf.

„Ég er nú svo gamaldags og gallaður að mér finnst ekki sæmandi að vera með upphrópanir og pólitískt þref, gaspur um fjölda þyrla eða fjármagn eða fjármagnsleysi Landhelgisgæslunnar þegar þrjú sjóblaut lík standa uppi, ástvinir eru helteknir af sorg og jafnvel viti sínu fjær. Þeir hinir sem lentu í skelfingunni bugaðir af sorg og sjálfsagt í einskonar losti, farnir á líkama og sál. Jafnvel dánir hið innra um stund,“ segir Guðmundur í kjölfar umræðu á samfélagsmiðlum og víðar eftir sjóslysið austan við Gletting.

Vottar hann syrgjendum samúð og sendir hlýjar bænir. Einnig vottar hann þeim sem komu að björguninni virðingu sem og öðrum sem sinntu störfum til að allt þetta gæti farið sem best.

Sjá einnig:
Egill segir okkur þurfa að líta í eigin barm:„Þetta eru mál sem við gefum sjaldnast gaum“

„Ég votta líka virðingu mína þeim stöllum Kristrúnu Frostadóttur og Þorbjörgu Gunnlaugsdóttur fyrir að sína þjóðinni styrk og hlýju á erfiðri stundu – og Georg Lárussyni fyrir hans yfirvegun og æðruleysi,“ segir Guðmundur en þau þrjú komu fram á tilfinningaríkum blaðamannafundi í morgun, reifuðu atburðarásina og svöruðu spurningum.

„Við erum öll með einhverjum hætti breytt í dag. Skoðum okkur sjálf af því tilefni – þótt ástæðan hefði mátt vera önnur – horfum inn á við og förum með eitthvað gott sem ömmur okkar eða mömmur kenndu okkur,“ segir hann að lokum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab