Marta María segir þjóðina geta lært þetta af Hagaskólamálinu: „Þegar miðjupartar snertust“

Um fátt var meira rætt í síðustu viku en Hagaskólamálið svokallaða, en eftir að fjölmiðlar grennsluðust fyrir um málið kom tilkynning frá skólastjóra um að sést hefði til tveggja starfsmanna kyssast. 

Málið rataði fyrst í fjölmiðla á miðvikudagskvöldið þegar Vísir greindi frá því að mannauðsskrifstofa Reykjavíkurborgar væri búið að fá inn á borð til sín kossa úr vinnurými á bak við sandblástursfilmu og DV greindi frá því að forráðamenn nemenda hefðu verið upplýstir um atvikið.  

Sjá einnig: Forráðamenn nemenda við Hagaskóla upplýstir um atvik í gær - Tveir starfsmenn „sáust kyssast“ 

Málið vatt upp á sig og fljótlega kom í ljós að starfsmennirnir höfðu stundað kynlíf í einkarými, en sandblásið gler skildi það frá einum gangi skólans. Mynd og myndband af atvikinu dreifðust um samfélagsmiðla í kjölfarið og sýndist sitt hverjum um málið.

Sjá einnig: Segja að kossamálið í Hagaskóla varði í raun kynlíf - Myndir og myndskeið í dreifingu

Sjá einnig: Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“

Segir málið hið pínlegasta

Marta María Winkel, ritstjóri Smartlands, tekur málið fyrir í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni:  Þegar miðjupartar snertust í Hagaskóla. Segir hún athæfið að elskast á bak við sandblásið gler svolítið eins og að borða kjötfarsbollur með hvítkáli, rófum, kartöflum og smjöri í hádegismat.

„Samfélag manna fór á hliðina í síðustu viku þegar fréttir bárust af því að tveir starfsmenn í grunnskóla hefðu kysst hvor annan. Í fyrstu var talið að um kossaflens væri að ræða en síðar kom í ljós að starfsmennirnir höfðu látið miðjuparta sína snertast á bak við sandblásið gler. Fólk var í sjokki og miðað við viðbrögðin var eins og það hefði aldrei heyrt um slíkar sameiningar á milli tveggja manneskja. Að ný mannleg hegðun hefði verið uppgötvuð! Gredda í Vesturbænum.“

Marta Marta segir málið hið pínlegasta og alveg sama hvernig þessu er snúið eða reynt að snúa út úr. Niðurstaðan sé alltaf sú sama: vandræðalegt.

Segist hún hafa fundið til með settum skólastjóra.

„Að vera í þeim sporum að þurfa að verja botnhegðun starfsmanna og það opinberlega er líklega ekki sérlegt skemmtiefni. Fólk með mannaforráð veit að starfsmannamál eru flókin á venjulegum hversdegi en hvað gerir stjórnandinn þegar starfsfólkið er farið að deila munnvatni og fleiru á vinnutíma? Hvern- ig á að taka á slíkum málum? Ég hef ekki hugmynd um það því ég er ekki menntuð á þessu sviði.

Það að láta miðjuparta snertast á bak við sandblásið gler í grunnskóla er ekki refsivert. En það er hins vegar siðlaust.“

Segist Marta María hafa haldið að Guðrún frá Lundi væri upprisin með splunkunýja bók í jólabókaflóðinu þegar hún heyrði fyrst af Hagaskólamálinu. 

Það næsta sem gerðist var að ljósmynd og myndband af starfsmönnum Hagaskóla dreifðust um samfélagið á leifturhraða. Þar sást glögglega að ekki var einungis um kossaflens að ræða heldur einhverja dýpri tengingu.

„Dreifingin var slík að fólk á elliheimilum var farið að reyna að greina hvaða stellingu væri verið að vinna með þegar myndbandið var skoðað í spjaldtölvu.

Það athæfi að áframsenda „dónalega“ ljósmynd er hins vegar refsivert. Dreifing á kynferðislegu myndefni án samþykkis getur varðað allt að fjögurra ára fangelsi.“

Segir Marta María að án þess að hún sé að skipta sér af sé ágætt að hafa það bak við eyrað áður en fólk sendir eitthvað sem það fékk sent áfram.

„Þegar eitthvað fer í skrúfuna á vinnustað eru viðbrögð umhverfisins misjöfn. Sumir verða eins og lögregla á vakt á slysstað og gera allt rétt á meðan aðrir gera einhverja þvælu eins og stærðfræðikennarinn sem bað nemendur sína vinsamlegast um að þegja yfir þessu atviki. Börnin komu heim til sín og ætluðu ekki að segja foreldrum sínum hvað hafði gerst því þau voru bundin trúnaði. Hver svíkur stærðfræðikennara? Fyrstu viðbrögð við hamförum eru oft afneitun og ég ætla að gefa mér að það hafi átt við kennarann.“

Líkir athæfinu við að borða kjötfarsbollur með öllu

Marta María spyr að lokum hvað við sem samfélag getum lært af Hagaskólamálinu. 

„Jú, líklega að það er betra að setja upp gifsvegg en sandblásið gler ef markmiðið er að búa til alvöru næði. Fínt að setja líka steinull á milli þilja. Svo lærum við að fólk er bara fólk. Það segir eitt og gerir annað og misstígur sig. Það að elskast á bak við sandblásið gler er svolítið eins og að borða kjötfarsbollur með hvítkáli, rófum, kartöflum og smjöri í hádegismat. Það er gott á meðan á því stendur en svo hellist skömm og vanlíðan yfir allar frumur líkamans. Það tekur smá tíma að núllstillast aftur eftir slíkan hádegisverð.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab