Leikmaður Bayern brjálaður yfir framkomu félagsins - „Algjörlega óásættanlegt“
Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 14:30
Joshua Kimmich / Getty Images
Joshua Kimmich, leikmaður Bayern München, hefur gagnrýnt forráðamenn félagsins harðlega fyrir framkomu þeirra í garð liðsfélaga síns, Jamal Musiala.
Musiala, sem er 23 ára gamall, hefur lítið getað spilað á tímabilinu vegna veikinda en hann hefur glímt við flogaveiki.
Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarmaður hjá Bayern, viðraði þann möguleika í síðustu viku að Musiala þyrfti að taka á sig launalækkun. Ummælin vöktu hörð viðbrögð í knattspyrnuheiminum.
Kimmich var spurður út í málið eftir 2-1 tap Bayern gegn Lille í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
„Það sem hefur gerst má einfaldlega aldrei gerast með þessum hætti. Mér finnst þetta algjörlega óskiljanlegt. Þetta eru hlutir sem á að ræða á bak við luktar dyr,“ sagði Kimmich.
„Félagið er auðvitað alltaf í fyrsta sæti og stærra en við leikmennirnir en það er ekki stærra en manneskjan. Þetta er algjörlega óásættanlegt og ekki í anda Bayern.“
Kimmich segir Musiala leggja gríðarlega hart að sér á æfingasvæðinu þrátt fyrir erfiðleikana sem hann hefur þurft að glíma við.
„Ég sé hann á hverjum degi og sé hversu hart hann vinnur. Ég vona að hann viti að við stöndum öll hundrað prósent á bak við hann.“
Kimmich kvaðst þó skilja að staðan væri einnig erfið fyrir félagið.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗