Minntust hinna látnu: „Við syrgjum sjómennina þrjá“

Þingheimur reis úr sætum af virðingarskyni við sjómennina.

Þingheimur reis úr sætum af virðingarskyni við sjómennina. Úr útsendingu þingsins

Við upphaf þingfundar í dag minntust þingmenn þeirra skipverja sem létust í sjóslysinu úti fyrir Austurlandi í gær.

Fundi var síðan slitið og halda þingmenn til annarra starfa í dag. Til stóð að hefja daginn á óundirbúnum fyrirspurnatíma en vegna slyssins var ákveðið að breyta áður boðaðri dagskrá.

Eydís Ásbjörnsdóttir, 4. varaforseti Alþingis, ávarpaði viðstadda við upphaf þingfundar.

Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og 4. varaforseti Alþingis.

Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og 4. varaforseti Alþingis.

„Ristir djúp í vitund okkar“

„Í gær varð sá hryggilegi atburður að fiskiskipið Jökull ÞH sökk 60 sjómílur austur af Glettingi. Um borð voru sautján sjómenn. Þrír þeirra eru látnir en fjórtán var bjargað í hetjulegri björgunaraðgerð þar sem mikill fjöldi fólks í landi, á legi og í lofti lagði sitt af mörkum í samstilltu átaki.

Slíkur atburður ristir djúpt í vitund okkar sem byggjum þetta land og vekur upp sterkar tilfinningar. Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær og samhryggjumst aðstandendum þeirra einlæglega. Við gleðjumst jafnframt innilega yfir björgun þeirra fjórtán sem komust lífs af úr þeirri þungu raun.

Viðbrögð björgunaraðila í gær og í nótt einkenndust af yfirvegun, fagmennsku og ósérhlífni og liðsveisla sjómanna á skipum úti fyrir Austurlandi bar vott um þann mikla samhug og samtakamátt sem einatt ríkir þegar alvarleg áföll ber að höndum. Íslenskt samfélag sýndi styrk sinn og samheldni við björgun skipverja af Jökli ÞH svo aðdáunarvert er.

Ég votta aðstandendum þeirra sem létust í sjóslysinu í gær djúpa hluttekningu í sorg þeirra og óska þeim sem komust af alls velfarnaðar. Öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við björgunarafrek í gær færi ég einlægar þakkir Alþingis.

Ég bið þingheim að rísa úr sætum í virðingarskyni við sjómennina.“

Eydís sagði í lokin að í stað áframhaldandi þingfundar myndu þingmenn sinna öðrum skyldum í dag. „Af dagskrá þessa fundar eru tekin bæði dagskrármálin,“ sagði hún og sleit þingfundi.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab