Viðræður við Frey halda áfram - Ekki útilokað að hann klári tímabilið hjá Rosenborg
Freyr Alexandersson gæti stýrt Rosenborg út tímabilið í Noregi þrátt fyrir að vera efstur á óskalista Swansea City í leit félagsins að nýjum stjóra.
Frá þessu greinir Anthony Joseph, fréttamaður Sky Sports, í dag.
Ashley Williams, sem hefur stýrt Swansea til bráðabirgða, verður við stjórnvölinn þegar liðið tekur á móti erkifjendum sínum í Cardiff í velska grannaslagnum á sunnudag.
Williams hefur ásamt Joe Allen, Leon Britton og Kris O'Leary stýrt liðinu frá því að Vitor Matos tók við franska félaginu Strasbourg í síðustu viku.
Freyr staðfesti í gær að Swansea hefði sett sig í samband við sig en viðræður standa enn yfir.
Samkvæmt heimildum Joseph er búist við því að Freyr stýri Rosenborg gegn Molde á laugardag en hann gæti jafnvel orðið áfram hjá norska félaginu þar til tímabilinu lýkur þann 13. desember.
Freyr, sem áður stýrði íslenska kvennalandsliðinu, stjórnaði æfingu Rosenborg í Þrándheimi í dag.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗