Stewart Copeland treður upp með SinfoniaNord í Hörpu – Einn besti trommari sögunnar leikur smelli The Police
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 13:52
Stewart Copeland hefur unnið glás af Grammy verðlaunum og selt plötur í bílförmum með The Police. Hann er almennt talinn einn frumlegasti og hæfasti trymbill rokksins.
Stewart Copeland, trymbill rokksveitarinnar The Police, heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu þann 21. mars næstkomandi. Mun hann spila helstu smelli hljómsveitarinnar ásamt sinfóníuhljómsveitinni SinfoniaNord.
„Árið 2027 markar tvöföld tímamót í lífi Stewart Copeland. Hann fagnar 75 ára afmæli sínu og jafnframt verða liðin 50 ár frá stofnun The Police, einnar áhrifamestu og vinsælustu rokksveitar allra tíma. Af þessu tilefni heldur hann í tónleikaferð um heiminn með hina rómuðu sýningu sína, Police Deranged for Orchestra, og kemur meðal annars fram í glæsilegum tónlistarhúsum á borð við óperuhúsið í Sydney, Carnegie Hall í New York og Eldborg í Hörpu,” segir í tilkynningu tónleikahaldarans Tónleiks.
The Police seldi um 90 milljónir platna og var ein stærsta rokksveit áttunda og níunda áratugarins. Copeland hefur hlotið sjö Grammy verðlaun og er fastagestur á listum tímarita yfir bestu trommara sögunnar, meðal annars Rolling Stone.
„En Copeland er miklu meira en stórkostlegur trommuleikari. Hann hefur einnig getið sér gott orð sem tónskáld og samið tónlist fyrir kvikmyndir, óperur, ballettsýningar og sinfóníuhljómsveitir. Í Police Deranged for Orchestra sameinar hann þessa tvo heima á sinn einstaka hátt,” segir í tilkynningunni. “Á tónleikunum í Eldborg munu stórsmellir á borð við „Roxanne“, „Every Breath You Take“, „Message in a Bottle“, „Don't Stand So Close to Me“ og „Every Little Thing She Does Is Magic“ öðlast nýtt líf í glæsilegum útsetningum Copelands sjálfs. Copeland sest að sjálfsögðu við trommurnar og með honum koma fram þrír frábærir söngvarar, gítarleikari og bassaleikari ásamt SinfoniaNord. Saman skapa þau magnaða tónleikaupplifun þar sem krafturinn úr rokkinu mætir hljómfegurð sinfóníuhljómsveitarinnar.“
Miðasala hefst 1. desember á tix.is. Miðaverð er frá krónum 13.990 krónum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗