Hörmulegs umferðarslyss minnst með viðburði á laugardag – „Sennilega mun ég alla ævi þurfa að glíma við þessar afleiðingar“

Ágúst Borgþór Sverrisson

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 14:00

Anna Linda Bjarnadóttir. Mynd: DV/KSJ

„Þessi árekstur hefur markað djúp spor í mínu lífi og haft mikil áhrif á lífsgæði mín og fjölskyldu minnar,“ segir Anna Linda Bjarnadóttir lögmaður sem lenti í hörmulegu umferðarslysi á Arnarnesbrúnni 28. nóvember árið 2020. Atvikið átti sér stað á umferðarljósum við umdeild gatnamót, en bíl var ekið á fullri ferð yfir á rauðu ljósi og lenti hann inni í hliðinni á bíl Önnu Lindu.

Ökumaðurinn sem olli slysinu var undir áhrifum áfengis. Um er að ræða konu á besta aldri, í góðum efnum og sterkri þjóðfélagsstöðu. Var konan handtekin á staðnum og færð inn í lögreglubíl. Hún var svipt ökuleyfi í nokkur ár og og þurfti að greiða nokkur hundruð þúsund króna sekt. 

Sjá einnig: Örlagastund Önnu Lindu á Arnarnesbrú – „Bláókunnug manneskja ákvað að fá sér í glas og keyra undir áhrifum“

Anna hefur undanfarin ár minnst þessa örlagadags í lífi sínum með sérstökum viðburðum þar sem hvatt er til árvekni gagnvart hættum í umferðinni. Að þessu sinni er viðburðurinn í samstarfi við bílaumboðið Heklu og Þórunni Óskarsdóttur, sem slasaðist alvarlega í leigubíl árið 2019. Eftirfarandi fréttatilkynning var send DV um málið: 

„Hörmulegs árekstrar á Arnarnesbrú minnst með árlegum viðburði

Árlegur viðburður um afleiðingar alvarlegra umferðarslysa, bættar samgöngur og kröfur um aukna umferðarlöggæslu verður haldinn laugardaginn 28. nóvember nk. í höfuðstöðvum HEKLU bílaumboðs í Þorraholti 2, Garðabæ.  Dagskrá hefst kl. 15. 

Það eru þær Anna Linda Bjarnadóttir og Þórunn Óskarsdóttir, stofnendur jafningjahópsins „Á batavegi,“ sem standa að viðburðinum fyrir hönd hópsins. 

 Þann 28. nóvember 2020 slasaðist Anna Linda alvarlega í árekstri við ölvaða konu á Arnarnesbrú og hefur þess atviks verið minnst á hverju ári síðan með viðburði.  Þórunn slasaðist alvarlega þann 1. nóvember 2019 sem farþegi í leigubíl á Reykjanesbraut. 

Í ár styður HEKLA bílaumboð við viðburðinn og verða árekstrarvarnir í bifreiðum og prófanir á þeim umræðuefnin að þessu sinni.  Ólafur Stefánsson, kennslustjóri HEKLU, flytur áhugavert og fróðlegt erindi um árekstrarvarnir í bifreiðum, sem HEKLA flytur inn.  Hann fjallar um tæknina að baki þessum mikilvægu öryggiskerfum og hvernig þau stuðla að auknu öryggi í umferðinni.  Jafnframt fer hann yfir árekstrarprófanir og sýnir myndbönd, sem veita innsýn í framkvæmd þeirra.  íÍ lok erindis verður tekið á móti fyrirspurnum úr sal. 

Léttar veitingar verða í boði að framsögum loknum.  Allir hjartanlega velkomnir!“ 

Anna Linda Bjarnadóttir. Mynd: DV/KSJ

Glímir við afleiðingarnar út ævina

„Það er ærin fyrirhöfn að jafna sig eftir svona harðan árekstur og í rauninni má tala um það sem starf. Síðustu sex árin hefur allt mitt líf snúist um að ná bata  og auka starfsþrekið. Hálsinn er ennþá viðkvæmur, mikil eymsli í brjóstbaki og verkir yfir bringubeini. Ég er sem betur fer með frábæran sjúkraþjálfara og hann hefur getað dregið úr og jafnvel haldið niðri að mestu taugaverkjunum, sem leiddu út í handleggi og verkjum í mjóbaki og vinstri mjöðm. Þrátt fyrir að gera alls konar æfingar sjálf alla daga næ ég ekki að halda niðri verkjum og einkennum án aðkomu meðferðaraðila. Ég get ekki verið án sjúkraþjálfunar tvisvar í viku þrátt fyrir að liðin séu sex ár frá árekstrinum. Sennilega mun ég alla ævi þurfa að glíma við þessar afleiðingar,“ segir Anna Linda í stuttu viðtali við DV. 

En Anna Linda hefur líka séð tækifæri í þessari hörmulegu lífsreynslu og hefur beitt sér fyrir auknu umferðaröryggi. Hún telur afleiðingar umferðarslysa vera vanmetnar: 

„Þessi árekstur hefur markað djúp spor í mínu lífi og haft mikil áhrif á lífsgæði mín og fjölskyldu minnar. Síðustu ár hef ég nýtt tækifærin í árekstrinum til að hjálpa öðrum og lyfta öðrum upp. Það hef ég gert með stofnun jafningjahópsins „Á batavegi“ ásamt Þórunni Óskarsdóttur, sem er aðgengilegur öllum þolendum umferðarslysa á Facebook og með því að halda þennan árlega viðburð til að vekja athygli á alvarlegum afleiðingum umferðarslysa fyrir þá sem þurfa að þola þær. Síðast en ekki síst hef ég síðustu ár í starfi mínu sem lögmaður boðið upp á lögfræðiþjónustu fyrir slysþola, sem leita réttar síns eftir slys. Því miður eru afleiðingar slysa í flestum tilvikum vanmetnar að mínu mati og hafa mun meiri áhrif á þolendur en matsgerðir gefa til kynna.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab