Freyr stýrir Swansea ekki um helgina
Freyr Alexandersson mun ekki stýra Swansea City gegn Cardiff City í B-deild Englands í fótbolta á sunnudag.
Ashley Williams, sem stýrir liðinu til bráðabirgða, verður áfram á hliðarlínunni á meðan viðræður standa yfir, að því er Sky Sports greinir frá.
Íslenski þjálfarinn mun þess í stað stýra Rosenborg gegn Molde á laugardag í mikilvægum leik í baráttu norska félagsins um Evrópusæti.
„Við höfum rætt við leikmenn og starfsfólk og ákveðið að Freyr muni stýra liðinu á laugardag,“ sagði Alfreð Finnbogason, íþróttastjóri Rosenborg, í dag.
Freyr staðfesti í gær að umboðsmenn hans ættu í viðræðum við Swansea. Hann er samningsbundinn Rosenborg til ársins 2029, sem þýðir að félögin þyrftu að semja um bætur áður en af félagaskiptunum gæti orðið.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗