Biskup biður fyrir áhöfn og aðstandendum
Biskup Íslands biður fyrir áhöfninni á Jökli ÞH, aðstandendum og öðrum sem eiga um sárt að binda.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu Þjóðkirkjunnar.
„Guð vonarinnar, við biðjum fyrir áhöfninni á Jökli ÞH. Þeim sem lifðu af og þeim sem létust. Við þökkum fyrir styrk þeirra og þrek að þola þessa raun,“ segir í upphafi bænarinnar.
„Við biðjum fyrir ástvinum þeirra sem beðið hafa milli vonar og ótta vítt og breitt um landið. Styrk þau sem nú hafa orðið fyrir óbærilegri sorg og umvef þau kærleika sínum,“ segir jafnframt í bæninni.
Þar er björgunaraðilum sömuleiðis þakkað fyrir störf þeirra, auk þess sem beðið er fyrir heilbrigðisstarfsfólki sem mun annast skipverjana og styðja ástvini þeirra.
„Guð, þjóðin okkar hefur sameinast í bæn. Við erum þakklát fyrir að búa í samfélagi sem stendur saman þegar á bjátar,“ segir í lok bænarinnar.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗