Minnir okkur á fórnir sem íslenskir sjómenn færa

Komið var með skipverjana til Egilsstaða í nótt.

Komið var með skipverjana til Egilsstaða í nótt. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson

Austfirskt samfélag er harmi slegið eftir sjóslysið sem varð austur af landinu í gær. Slysið undirstrikar mikilvægi þess að öflugar bjargir séu fyrir hendi og að viðbragðsgeta sé tryggð um land allt.

Þetta segir Ragnar Sigurðsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, í færslu á Facebook þar sem hann vottar aðstandendum þeirra sem fórust samúð sína og þakkar þeim fjölmörgu sem komu að björgunaraðgerðum.

„Slysið minnir okkur rækilega á þær fórnir sem íslenskir sjómenn færa og hafa fært þjóðinni í gegnum tíðina. Sjóslys eru blessunarlega orðin mun fátíðari en áður en náttúran og hafið minna okkur reglulega á mátt sinn.“

Ragnar Sigurðsson.

Ragnar Sigurðsson. Ljósmynd/Aðsend

Beið fólk í von og óvon

Ragnar segir fólk um allt Austurland hafa beðið í von og óvon eftir fregnum af björgunaraðgerðum og afdrifum sjómannanna.

„Fjöldi fólks var reiðubúinn að leggja sitt af mörkum og veita alla þá aðstoð sem á þurfti að halda. Þar birtist enn á ný sá mikli samtakamáttur sem einkennir samfélagið okkar.“

Fyrir hönd sambandsins færir hann björgunarsveitafólki, starfsfólki Landhelgisgæslunnar, heilbrigðisstarfsfólki og öðrum viðbragðsaðilum einlægar þakkir fyrir störf þeirra við afar krefjandi aðstæður.

Framlagið verði aldrei fullþakkað

„Við stöndum ávallt í þakkarskuld við þá einstaklinga sem eru reiðubúnir að leggja mikið á sig og jafnvel stofna eigin öryggi í hættu til að bjarga öðrum, hvort sem það er í sjálfboðastarfi eða við skyldustörf. Framlag þeirra verður aldrei fullþakkað.“

Ragnar segir hug Austfirðinga hjá þeim sem eiga um sárt að binda eftir slysið.

„Við minnumst þeirra sem fórust og vottum fjölskyldum þeirra og ástvinum okkar dýpstu samúð. Hugur okkar er jafnframt hjá þeim sjómönnum sem komust lífs af og aðstandendum þeirra.“

Frá vettvangi í gærkvöldi.

Frá vettvangi í gærkvöldi. Ljósmynd/Landsbjörg

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab