Pólverji meðal þeirra sem fórust með Jökli

Einn þeirra þriggja skipverja sem fórust þegar fiskiskipið Jökull sökk austur af Íslandi í gærkvöldi var pólskur ríkisborgari.

Þetta kemur fram í frétt AFP-fréttastofunnar sem hefur staðfestingu frá pólska utanríkisráðuneytinu. Vísir greindi frá því í morgun og hafði eftir heimildum að hinir tveir hefðu verið Íslendingar.

Tveir Pólverjar voru meðal sautján skipverja um borð í Jökli og komst annar þeirra lífs af. 

Fjórtán skipverjum var bjargað við afar erfiðar aðstæður eftir að hafa velkst um í sjónum í um fjórar klukkustundir.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab