Kitlar að spila aftur á Englandi

Alfons Sampsted lék með Birmingham City.

Alfons Sampsted lék með Birmingham City. Ljósmynd/Birmingham City

„Það myndi alveg kitla að spila aftur þarna ef það kæmi upp,“ sagði Alfons Sampsted, knattspyrnumaður hjá Go Ahead Eagles í Hollandi, í samtali við Morgunblaðið um mögulega endurkomu til Englands.

Alfons gekk til liðs við hollenska félagið eftir dvöl hjá Birmingham þar sem meiðsli og takmarkaður spilatími gerðu honum erfitt fyrir.

„En á þessum tímapunkti vegur maður stöðuna og okkur leið eins og Go Ahead væri besta lendingin.“

Hann sagði þó markmiðið ekki vera að yfirgefa Go Ahead Eagles við fyrsta tækifæri.

„Markmiðið er ekkert að vera farinn við fyrsta tækifæri. En ef eitthvað kemur upp skoða menn hvað er í boði.“

Alfons sagði nándina hjá hollenska félaginu hafa mikið að segja fyrir sig og fjölskylduna.

„Þetta er mjög náið samfélag og manni líður mjög vel hérna. Þér líður eins og þú hafir svigrúm til að prófa hluti og bæta þig en það eru samt ákveðnar væntingar um að allir gefi allt af sér.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab